innviðir markaða fyrir fjármálagerninga sem byggjast á dreifðri færsluskrártækni.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir góða ræðu. Það er erfitt að tileinka sér svona flókið mál með eins erfið viðfangsefni og þakka ég því fyrir greinargóða lýsingu. Ég vil spyrja hv. þingmann hvað honum finnist um innleiðingu á þessari reglugerð þar sem í frumvarpinu er talað um tilraunaumgjörð. Ég veit ekki betur en að það þekkist almennt ekki að talað sé um tilraunaumgjörð í samhengi við almenn lög og mig langar að heyra skoðun þingmannsins hvað það varðar. Auk þess langar mig að spyrja hv. þingmann hvað honum þyki um skilyrði leyfisveitingar með hliðsjón af samkeppnissjónarmiðum. Telur hv. þingmaður að þetta gæti orðið til að styrkja stöðu stærri fjármálafyrirtækja sem hafa bolmagn til að tileinka sér nýja og flókna tækni sem minni fyrirtæki hreinlega geta ekki nýtt sér?