154. löggjafarþing — 117. fundur,  5. júní 2024.

innviðir markaða fyrir fjármálagerninga sem byggjast á dreifðri færsluskrártækni.

914. mál
[21:10]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P) (andsvar):

Frú forseti. Fyrst varðandi tilraunaumgjörðina. Ég tek undir með hv. þingmanni að þetta er svolítið skrýtið en ég ætla að viðurkenna að mér finnst þetta skemmtilegt. Mér finnst áhugaverð nálgun þegar þú ert með flókið viðfangsefni að meira að segja Evrópusambandið geti bara sagt: Hér er of flókið mál til að við neglum niður nákvæmlega hvernig þetta á að vera um alla framtíð. Við skulum bara innleiða eitthvað svona bráðabirgðaregluverk næstu sex árin til að sjá hvernig það virkar. Svo tökum við stöðuna á því og í framhaldinu getum við neglt niður framtíðarfyrirkomulagið. Mér finnst þetta svona organískara heldur en við eigum að venjast varðandi lagasetningu almennt, hvað þá frá risaapparati eins og Evrópusambandinu. Þannig að jú, þetta er skrýtið en kannski er þetta sniðugt. Kannski ættum við að gera þetta oftar, prufukeyra lög í tvö ár og taka stöðuna á þeim og ákveða síðan hvort við höldum þeim áfram óbreyttum eða gerum einhverjar breytingar á þeim. Við erum oft með í lögum bráðabirgðaákvæði um endurskoðun þeirra. Við vorum að ræða Menntasjóð námsmanna hérna fyrr í dag. Í þau lög, þegar þau voru tekin til heildarendurskoðunar, var sett bráðabirgðaákvæði um að ráðherra ætti að skoða það hvort þyrfti að endurskoða þau eftir þriggja ára reynslu. Ráðherra skilaði skýrslu, tíminn leið og það er mjög óljóst hvað mun koma út úr því. Kannski hefði eitthvað meira komi út úr því ef hefði bara verið hörð lokadagsetning, bara: Þessi lög falla úr gildi nema það sé tekin sérstök ákvörðun á þingi um að setja þau aftur. Ég veit ekki, þetta er kannski of mikið anarkí fyrir kerfið okkar (Forseti hringir.) en mér finnst áhugavert og skemmtilegt að svona tilraunamennska komi frá risanum í Brussel.