innviðir markaða fyrir fjármálagerninga sem byggjast á dreifðri færsluskrártækni.
Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Ég velti því svolítið mikið fyrir mér hvað hv. þingmanni þyki um mál af þessu tagi bara yfir höfuð. Svona flókin innleiðingarmál þarfnast nánast túlks til að skilja þau almennilega á köflum, sérstaklega ef viðkomandi hefur ekki menntun eða sérþekkingu á viðeigandi sviði. Svo kemur málið inn á þing án nokkurra umsagna, hvorki í samráðsgátt né hér á þingi eða fyrir nefnd. Vissulega er það jákvætt atriði að koma á regluverki á nýstárlegu sviði. Eins og við þekkjum best er mikilvægt að hafa skýrar leikreglur þegar kemur að fjármálageiranum. En telur hv. þingmaður að það sé gengið fram hjá hinni þinglegu meðferð þegar verið er að samþykkja lög með hugsanlega stórt umfang án þess að kanna það til hlítar?