154. löggjafarþing — 117. fundur,  5. júní 2024.

innviðir markaða fyrir fjármálagerninga sem byggjast á dreifðri færsluskrártækni.

914. mál
[21:13]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P) (andsvar):

Frú forseti. Ef við hættum að spá í því að hérna sé eitthvert flókið rafmyntabras í gangi og lítum bara á þetta sem regluverk um fjármálakerfið þá held ég að reynslan sé búin að sýna okkur að við ráðum ekki við ein og sér að innleiða þær varnir sem nauðsynlegar eru til að komast hjá misnotkun. Hrunið varð m.a. vegna þess að við innleiddum ekki nógu hratt þær reglur sem var verið að setja um sameiginlegan fjármálamarkað innan Evrópska efnahagssvæðisins. Þar með fundu þeir peningar sem vildu svindla á kerfinu sér auðveldustu leið innan Evrópu og lentu margir á Íslandi þar sem var síðan hægt að byggja upp allt of stórt og allt of viðkvæmt fjármálakerfi. Þannig að ég held að almennt séð þá höfum við margt að vinna með því að taka svona flókið regluverk inn í gegnum EES-samninginn þótt að sjálfsögðu eigum við að vanda til verka þegar kemur að innleiðingunni. Þar kreppir skórinn ansi oft. Ég er sammála því.