154. löggjafarþing — 117. fundur,  5. júní 2024.

innviðir markaða fyrir fjármálagerninga sem byggjast á dreifðri færsluskrártækni.

914. mál
[21:15]
Horfa

Tómas A. Tómasson (Flf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir hans ágætu ræðu og dáist að því hversu vel hann er inni í þessu máli. Ég vil spyrja hann aðeins nánar út í þetta frumvarp sem við ræðum hér við 3. umræðu. Ég vildi spyrja hann hvort sú umgjörð og það regluverk sem þetta frumvarp innleiðir setji skorður fyrir minni aðila í þessum atvinnugeira, þ.e. nýsköpun á grundvelli dreifðrar færsluskrártækni, til að hasla sér völl. Mun þetta leiða til þess að frumkvöðlar þurfi að fá ráðgjöf lögfræðinga til þess að geta þróað sínar vörur sem byggja á þessari tækni bálkakeðjunnar og setja þær á markað? Nú er það svo að iðulega þegar við innleiðum samevrópskt regluverk þykir það oft mjög flókið fyrir hinn venjulega mann sem þarf þá að leita til sérfræðinga til þess að geta athugað hvort hans starfsemi samrýmist hinu nýja regluverki. Hefur hv. þingmaður áhyggjur af því að þessi innleiðing hér muni snerta, ef svo má að orði komast, litla aðilann á þessum mörkuðum, þ.e. nýsköpunartækni, sem njóta ekki stuðnings fagfjárfesta? Ég segi nú bara eins og Denzel Washington sagði við Tom Hanks í myndinni Philadelphia: Útskýrðu þetta fyrir mér eins og ég væri sex ára.