innviðir markaða fyrir fjármálagerninga sem byggjast á dreifðri færsluskrártækni.
Frú forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir að fylgja eftir spurningu sem ég snuðaði hv. þm. Katrínu Sif Árnadóttur um svar við áðan, hvernig svona regluverk sé líklegt til að snerta við litlum nýsköpunarfyrirtækjum á fjármálamarkaði. Það er auðvitað það sem við þurfum að hafa stækkunarglerið á núna í þessum tilraunafasa. Það er kannski þess vegna sem er einmitt sniðugt að þetta sé tilraunaverkefni, þessi lagasetning, þessi umgjörð, vegna þess að hún verður að verða til þess að hvetja áfram nýsköpun, að auka skilvirkni fjármálakerfisins, leyfa öllum ólíku sprotunum að blómstra. Það er ávinningurinn sem er mögulega hægt að ná út úr þessu. Ef við fáum hann ekki þá er spurning til hvers þetta er unnið. Hvort aðilar þurfi einhverja flókna lögfræðiráðgjöf og það allt þá held ég að það geti bara vel verið en ég held að það þurfi líka hvort eð er þegar þú ert að reisa fjármálafyrirtæki. Hins vegar þurfa þau ekki að vera jafn þunglamaleg og við eigum kannski að venjast. Við sáum auðvitað á Íslandi nýsköpun á sviði hinna hefðbundnu fjármálafyrirtækja þegar Indó sparisjóður opnaði hér fyrir stuttu og var bara með allt annað þjónustuframboð en eldri bankarnir, allt annað rekstrarmódel, og viðskiptavinir flykktust þangað. Það er stór hópur fólks í samfélaginu sem er tilbúinn til að prófa einhverjar breytingar á fjármálamarkaði og við verðum að sjá til þess að þessi umgjörð hjálpi þeim sem vilja hjálpa því fólki að fá betri þjónustu.