154. löggjafarþing — 117. fundur,  5. júní 2024.

innviðir markaða fyrir fjármálagerninga sem byggjast á dreifðri færsluskrártækni.

914. mál
[21:18]
Horfa

Tómas A. Tómasson (Flf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni svarið og vil spyrja hann um annan þátt málsins. Ég vil spyrja hv. þingmann um það sem fólki hefur orðið tíðrætt um í kvöld, þá nýbreytni að innleiða regluverk í tilraunaskyni. Nú man ég að hv. þingmaður barðist fyrir því og fékk það í gegn með breytingartillögu sem hann stóð fyrir með hv. þingmönnum Þórunni Sveinbjarnardóttur og Höllu Signýju Kristjánsdóttur að ný lög um leigubifreiðir yrðu endurskoðuð en ekki samþykkt og meitluð í stein um ókomna framtíð. Telur hv. þingmaður að dæmi sem þessi, þ.e. löggjöf sem sætir endurskoðun að fenginni reynslu, þurfi að fá meira brautargengi hér innan veggja Alþingis?