innviðir markaða fyrir fjármálagerninga sem byggjast á dreifðri færsluskrártækni.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðu sína og ekki síður andsvörin hér áðan sem voru mjög áhugaverð og þetta eru fínar umræður. Við erum að tala hér um tilraunaumgjörð um útgáfu fjármálagerninga á grundvelli dreifðrar færsluskrártækni og hv. þingmaður kom inn á áhugaverðan hlut varðandi peninga, að innra verðgildi fimmhundruðkallsins er ekki neitt, innra verðgildi peningaseðils, 500 kr., er ekki neitt. Þetta byggist allt á trausti að sjálfsögðu. Það var ekki alveg svona áður. Peningar voru tengdir gullfæti, íslenska krónan tengd gullfæti og danska krónan og svo hrundi þetta allt í fyrri heimsstyrjöldinni. Bretar tóku reyndar upp gullfótinn aftur en svo eftir síðari heimsstyrjöld þá tengdist bandaríkjadollari gullfæti en allir peningar tengdust bandaríkjadollar. Svo var þessu hætt árið 1970. Þannig að við erum raunverulega með kerfi sem byggir algerlega á trausti. Við gætum þess vegna stofnað saman Andrés-„coin“ og prófað hvort það myndi einhver treysta þeim gjaldmiðli og notað hann í viðskiptum eins og Bitcoin, stofnað heimasíðu og reynt að verða ríkir á að dreifa þessu. Það er náttúrlega vandamálið í þessu öllu saman.
Hann talaði líka um tilraunamennsku sem komi frá risunum í Brussel og að hann væri hrifinn af þessari tilraunamennsku. Spurningin er þessi: Telur hann að þessi tilraunamennska sem við ætlum að lögleiða núna í 3. umræðu í atkvæðagreiðslu — það kom engin umsögn, var engin umræða í nefnd um þetta — sé ekki algerlega vankynnt mál fyrir samfélaginu? Það er engin umræða um þetta í íslensku samfélagi. (Forseti hringir.) Við erum að reyna að byggja upp nýsköpunariðnað og komast út úr auðlindahagkerfi okkar. (Forseti hringir.) Er þetta ekki eitthvað sem við ættum að taka til okkar hér í þinginu og líka ríkisstjórnin?