154. löggjafarþing — 117. fundur,  5. júní 2024.

innviðir markaða fyrir fjármálagerninga sem byggjast á dreifðri færsluskrártækni.

914. mál
[21:23]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P) (andsvar):

Frú forseti. Ég veit ekki hvort ég sé að stríða þingmanninum ef ég segi þetta eða ekki, en jú, innra verðgildi peninga er ekki neitt. Peningakerfið byggir allt á trausti, á því að við séum sammála um verðgildi peninganna. En var það ekki alveg eins þegar það var gullfótur? Hvert er verðgildi gulls? Þetta eru allt mannasetningar. Þetta snýst allt um það að við sem hópur einstaklinga setjum verðgildi á eitthvað. Gull í sjálfu sér hefur ekkert verðgildi. Það breytist ekki fyrr en það er sett í eitthvert mannlegt samhengi þannig að þetta snýst alltaf um einhvers konar samfélagssáttmála. En traust er einmitt lykillinn. Það eru náttúrlega góðir og verri þættir í þessu regluverki en góði þátturinn er að það er verið að búa til einhvern mekanisma til þess að geta byggt upp traust að baki dreifðri færsluskrártækni sem mér finnst t.d. mjög áhugavert að skoða í samhengi þess að seðlabankar gætu farið að nýta sér þessi verkfæri. Þá ertu kominn með aðila sem í samfélaginu nýtur trausts með verkfæri sem er komið með eitthvað svona trúverðugt regluverk utan um.

Hvað varðar það að engin umsögn hafi borist og lítil umræða hafi verið þá tek ég bara undir með hv. þingmanni að það er til hálfgerðs vansa. Ég tók sjálfur til máls í 1. umræðu þessa máls. Mér hefur þótt þetta áhugavert frá því að það kom hingað inn og mér þykir sérstaklega áhugaverðir þessir ólíku hagsmunir sem togast á, friðhelgi einkalífs á móti því að geta náð utan um (Forseti hringir.) efnahagsbrot. En já, ég hefði viljað sjá fleiri umsagnir og meiri umræðu. Ég skal taka undir það.