154. löggjafarþing — 117. fundur,  5. júní 2024.

innviðir markaða fyrir fjármálagerninga sem byggjast á dreifðri færsluskrártækni.

914. mál
[21:26]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið og ég er algerlega sammála, mér finnst þetta til hálfgerðs vansa fyrir okkur sem ætlum að fara inn í nýsköpun og hér er akkúrat þannig löggjöf. Það er talað um það hérna að þetta sé tilraun, á ensku svokallað „pilot regime“ og gildandi regluverk veiti takmarkað svigrúm til nýsköpunarverkefna á sviði fjármálaþjónustu. Þetta á að leysa þann vanda. Ísland er alveg rakinn markaður fyrir tilraunaverkefni. Einangruð eyja, 400.000 sálir hér uppi í Norður-Atlantshafi, kröfuhart samfélag með alla nýjustu tækni til að prófa vörur sem geta síðan farið inn á 100 milljóna markað, 500 milljóna markað, sem er Evrópska efnahagssvæðið, eða 360 milljóna markað, sem er Bandaríkjamarkaður. Við ættum að geta unnið beggja vegna Atlantshafsins sem tilraunastöð fyrir tækni eins og dreifða færsluskrártækni og við ættum að vinna í því að markaðssetja landið til að fá þetta til okkar. (Forseti hringir.)

Varðandi gullið þá er þetta alveg hárrétt hjá hv. þingmanni, við getum ekki borðað það t.d., það er ekkert innra verðgildi í því fyrir okkur nema ef einhver annar láti okkur fá húsaskjól eða matvæli eða (Forseti hringir.) okkar lífsnauðsynjar fyrir gull. Það er alveg hárrétt. En það breytir því ekki að innra gildið er ekki neitt, það er alveg rétt varðandi gullfótinn líka.

(Forseti (JSkúl): Ég minni hv. þingmenn á að virða ræðutíma.)