154. löggjafarþing — 117. fundur,  5. júní 2024.

innviðir markaða fyrir fjármálagerninga sem byggjast á dreifðri færsluskrártækni.

914. mál
[21:28]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P) (andsvar):

Frú forseti. Mér finnst dálítið gaman að við séum að tala hérna um gildi peninga, það hvernig fjármagn verður til og hvað skilgreini það. Þá kannski rötum við á ákveðinn grunnpunkt varðandi það að vegna þess að verðgildi í sjálfu sér er eitthvað sem við búum til í samfélaginu þá er gildi peninga kannski helst það að hægt sé að mæla gildið gagnvart samfélaginu sjálfu. Kannski er grunngildi peninga það að hægt er að greiða með peningum skatta til samfélagsins. Þannig getum við deilt byrðum með einhverjum mælanlegum hætti þannig að við séum öll að leggja til samneyslunnar og halda þessu samfélagi gangandi. (Forseti hringir.) Það er kannski eitt af mikilvægustu hlutverkum peninga sem verkfæris í þágu samfélagsins.