innviðir markaða fyrir fjármálagerninga sem byggjast á dreifðri færsluskrártækni.
Virðulegi forseti. Mig langar að koma í seinni ræðu minni inn á ákveðin atriði sem hafa komið fram í umræðum um málið. Við erum að tala hér um frumvarp til að koma á tilraunaumgjörð um útgáfu fjármálagerninga á grundvelli dreifðrar færsluskrártækni og sérstakra leyfa til rekstrar innviða sem taka til viðskipta og annast uppgjör slíkra viðskipta. Hér er um grundvallarmál að ræða. Við höfum alltaf stundað viðskipti sem fara ekki í gegnum dreifða færsluskrá heldur fara flest okkar viðskipti, önnur en kannski mjólkurkaup og matvæli, t.d. eins og bílaviðskipti og fasteignaviðskipti, í gegnum opinberar skrár. Við kaupum okkur bifreið og breytum skráningunni á eigandanum hjá opinberri skrá sem heitir bifreiðaskrá sem er vistuð hjá Samgöngustofu. Ef við kaupum húsnæði þá er kaupsamningi þinglýst hjá sýslumanni sem er opinber aðili. En í dreifðri færsluskrá er hægt að gera það án aðkomu opinbers aðila eða miðstýrðs aðila. Þá færist eignarhaldið t.d. á bifreiðinni bara yfir við síðustu greiðslu í þessum dreifðu færsluskrám sem eru margar skrár sem uppfærast allar nákvæmlega eins.
Hér er um gríðarlega mikilvæga tækni að ræða sem mun sennilega ryðja sér til rúms á Íslandi með mjög skjótum hætti ef stjórnvöld myndu ákveða það að kanna þessa möguleika, ég myndi t.d. mæla með því að við myndum byrja á bifreiðaskrá, hafa hana í dreifðri færsluskrá og svo prófa sig áfram. Einnig ættu stjórnvöld að leitast eftir því að nýsköpunarfyrirtæki, íslensk og erlend nýsköpunarfyrirtæki kæmu hingað til landsins á grundvelli þessarar tilraunaumgjörðar, tilraunaregluverks, til þess að prófa markaðsinnviði þessarar dreifðu færsluskrártækni. Það er það sem Ísland á að gera. Við eigum alveg einstakt tækifæri til að vera tilraunasamfélag varðandi nýja tækni með fjármálagerninga.
Þetta tengist líka að sjálfsögðu peningum og það var ágætisumræða hér áðan um það, í ræðu hjá hv. þm. Andrési Inga Jónssyni, um gildi peninga. Það er alveg hárrétt að innra gildi peninga er ekkert, það er bara traustið. Við erum með lög um lögeyri og lögeyrir á Íslandi er íslensk króna, líkt og segir í þeim lögum. Eina leið okkar til að greiða skatt er með íslensku krónunni. Bitcoin byggir á dreifðri færsluskrá eins og kom fram í máli hv. þm. Gísla Rafns Ólafssonar, byggir á blokkarkeðju sem byggir á dreifðri færsluskrá, „distributed ledger“. Bitcoin er ekki lögeyrir á Íslandi. Eina ríkið sem ég veit um er er El Salvador, Bitcoin er lögeyrir þar og þá er hægt að borga skatta með Bitcoin. En það er alveg klárt mál að stjórnvöld munu setja íslensku krónuna inn í dreifða færsluskrá, í blokkarkeðju, og þá verður til eins konar rafmynt. Ég held að Svíar séu komnir með rafmynt. Ég veit um eitt fyrirtæki, Monerium, Sveinn Valfells var með það og hann var með rafeyri. Þessi rafmynt eða sá rafeyrir sem er gefin út þar þarf að vera viðurkenndur af einhverjum, kaffihúsinu t.d. eða fiskbúðinni, að þær samþykki að taka á móti rafeyrinum. En það breytir því ekki að lögeyrir á Íslandi er alltaf íslenska krónan. Íslensk stjórnvöld þurfa þá að ákveða að leyfa aðrar myntir en íslensku krónuna. En ég tel mikilvægt að íslenska krónan fari inn í rafmyntakerfi. Stórveldin eru farin að pæla í þessu og sérstaklega Kína og það er klárt mál að þetta er framtíðin. Við munum lenda í því í framtíðinni að þurfa að taka ákvörðun um það hvar við ætlum að standa í þessum málum.
Ég tel að þessi dreifða færsluskrártækni og þetta regluverk muni, eins og kemur fram í greinargerðinni, sameina viðskipti og eftirviðskipti sem til þessa hafa verið aðskildar tegundir fjármálaþjónustu, þau verði sameinuð í ein viðskipti m.a. vegna þess að það þarf ekki að fara í gegnum hinn svokallaða trausta þriðja aðila. (Forseti hringir.) Það er grundvallarbreyting.
Ég held að þetta sé að mörgu leyti gott frumvarp en ég harma það að þetta hafi ekki verið kynnt nægjanlega og ekki verið sóst nægilega vel eftir því að fá umsagnir (Forseti hringir.) utan úr samfélaginu og vekja athygli á þessu mikilvæga máli í samfélaginu til að efla nýsköpunariðnað á Íslandi. Það er rakið tækifæri að gera þetta hér (Forseti hringir.) vegna smæðar og einangrunar samfélagsins.
(Forseti (JSkúl): Forseti minnir hv. þingmenn á að virða ræðutíma.)