innviðir markaða fyrir fjármálagerninga sem byggjast á dreifðri færsluskrártækni.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Eyjólfi Ármannssyni fyrir hans þátttöku í umræðunni um þetta mál og sömuleiðis málið sem við ræddum hér á undan í allnokkurn tíma sökum þess hve mikilvægt er að vanda til lagasetningar. Ég tók eftir því að hv. þingmaður fór svolítið að ræða um möguleg tækifæri sem geta falist í þessari tækni. Ekki ætla ég að þykjast vera sérstaklega flinkur í fínni blæbrigðum tækninnar sem þarna er að baki en mér finnst auðvitað mjög áhugavert að heyra það þegar öflugir þingmenn koma hingað upp og tala um vannýtt tækifæri sem við missum af þegar hingað koma í gegn mál, ef ég hef skilið málflutning þingmannsins rétt, bæði í þessu máli og á undan, sem fara kannski stundum á svolítilli sjálfvirkni í gegnum þingið og ekki gengið nægilega mikið eftir umsögnum enda voru þær ekki að berast. Það sama átti náttúrlega við um málið sem hér var til umræðu á undan. Þá langar mig kannski að inna hv. þingmann eftir því: Er það skoðun og upplifun þingmannsins að það sé oft þannig í þessari lagasetningu þegar kemur að innleiðingum og öðru að stjórnkerfið sé, ráðuneytin, þingið, að missa af tækifærum til þess til að mynda að efla nýsköpun, efla hugverkaiðnaðinn eða hvaða iðnað eða atvinnugrein sem er? Ég væri mjög til í að heyra nánar frá hv. þingmanni um þetta því að auðvitað er það þannig að skapandi og öflugt samfélag eins og það íslenska á að nýta hvert einasta tækifæri til að virkja fólk úti í samfélaginu til að efla það sem hingað kemur. Og það er auðvitað hægt að nota þau tæki og tól sem felast t.d. í nefndastörfum þingsins til þess að gera það. (Forseti hringir.) Það væri mjög gaman að heyra aðeins nánar frá þingmanninum um þetta.