innviðir markaða fyrir fjármálagerninga sem byggjast á dreifðri færsluskrártækni.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Sigmari Guðmundssyni kærlega fyrir þetta andsvar og gott að fá tækifæri til að tjá sig um nákvæmlega þetta atriði. Ég tel að t.d. þessi mál, frumvarp til laga um innviði markaða fyrir fjármálagerninga sem byggjast á dreifðri færsluskrártækni og ekki síður málið á undan um frjálst flæði ópersónugreinanlegri gagna, séu eiginlega sett svolítið á færiband og þetta eigi bara að rúlla í gegn. Þetta er þýtt á íslensku, gerðirnar, og svo er þetta sett í lagaform með t.d. tilvísunarkerfinu og það er ekki unnið nægilega mikið með þessi frumvörp. Þau eru búin í þann búning, t.d. eins og frumvarpið áðan, að það er sagt að það séu bara tekin aðalatriðin til að kynna fyrir almenningi. Þetta mál sem er svolítið tæknilegt þarf að kynna sérstaklega, það ætti að vera með fundi fyrir félag nýsköpunarfyrirtækja og þá sem eru að vinna í þessari fjártækni innan bankanna og segja: Hér er að koma löggjöf sem þið eigið að taka eftir og reyna að nýta og segja svo jafnvel út fyrir landsteinana að á Íslandi sé gríðarlega góður markaður til að prófa nýjungar í tækni. Það er gríðarleg eftirspurn eftir því að finna „pilot“ markaði, finna fólk sem hægt er að prófa vörur á í kröfuhörðu umhverfi sem er þá einangrað eins og Ísland. Við erum nýjungagjarnt samfélag sem er tilbúið að prófa nýjar vörur. Hérna er tækni, dreifð færsluskrártækni sem hljómar kannski rosalega fjarlægt en þetta eru bara dreifðar færsluskrár sem eru með nákvæmlega sömu gögnin á mörgum stöðum sem keyrast allar upp á sama tíma. Það tekur mikla orku og við erum mjög sterk þar, höfum hlutfallslega yfirburði varðandi ódýra raforku. Það tekur gríðarlega raforku bara að keyra þetta upp.