154. löggjafarþing — 117. fundur,  5. júní 2024.

innviðir markaða fyrir fjármálagerninga sem byggjast á dreifðri færsluskrártækni.

914. mál
[21:39]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V) (andsvar):

Ég þakka hv. þm. Eyjólfi Ármannssyni fyrir þetta. Núna langar mig að fara kannski aðeins út fyrir efnið vegna þess að við verðum svolítið að hugsa til þess hér í þessum þingsal að það er stutt til þingloka. Pólitíska landslagið er þannig að það ríkir mikil óvissa um það hvaða mál eigi að ganga í gegnum þingið að þessu sinni. Við erum hér að ræða mál þar sem stjórnarþingmenn sjást lítið í umræðunum og mér finnst, óháð efni þessa máls, svolítið bagalegt að við skulum ekki vera nær því að vita hvað eigi að leggja áherslu á núna á þessum fáu dögum sem eftir eru. Auðvitað myndast oft eitthvað svona ástand fyrir þinglokin eins og við þekkjum, en til viðbótar við þetta hefðbundna þá erum við með þá stöðu uppi að stjórnarsamstarfið hangir á bláþræði. Við vitum að staðan núna er til komin vegna þess að það næst ekki samkomulag á milli stjórnarflokka um mál. Það þýðir síðan að fjölmörg mál, sem kannski þingheimur er meira og minna sammála um læsast einhvern veginn inni. Við erum, finnst mér í þessari stöðu, svolítið nálægt því að bregðast þjóðinni vegna þess að ég held að það sé alveg sanngjarnt að segja það að við sem kjörnir fulltrúar eigum að rísa undir þeirri ábyrgð að láta það ekki skipta höfuðmáli hvaðan góð mál koma eða hver meiri hlutinn á bak við þau sé hverju sinni heldur vinna meira þannig að sjálfur þingmeirihlutinn fái að koma fram óháð því hver staðan er innan stjórnarflokkanna í einhverju reiptogi á milli mála. Þannig að mig langaði að fá frá hv. þingmanni hans stöðumat á tveimur mínútum um það hvernig hann metur stöðuna með tilliti til þess hvað gerist núna í þingstörfunum fram undan og hvort það sé ekki bagalegt líka að það séu fáir stjórnarþingmenn að dýpka umræðuna hér sem auðvitað ætti síðan (Forseti hringir.) að auðvelda okkur það að vinna úr þeim upplýsingum sem fyrirliggjandi eru í hverju máli og auðvelda okkur að taka ákvörðun þegar við erum að greiða atkvæði.