154. löggjafarþing — 117. fundur,  5. júní 2024.

innviðir markaða fyrir fjármálagerninga sem byggjast á dreifðri færsluskrártækni.

914. mál
[21:42]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Sigmari Guðmundssyni kærlega fyrir þetta andsvar. Það kemur inn á kjarna málsins í veruleika okkar hér í þinginu, svo sannarlega. Það eru þingmál sem eru að koma út úr nefndum sem þingmeirihluti er fyrir, klárlega. Ég sá í fjölmiðlum að hv. þingmaður tjáði sig um frumvarp til breytinga á lögreglulögum. Hann lýsti yfir stuðningi við það mál og ég veit að það er breiður stuðningur við þá lagabreytingu t.d. hér í þingsal en ekki innan ríkisstjórnarinnar hins vegar. Það eru fleiri mál sem við getum tekið dæmi um, útlendingamálið er mjög umdeilt mál sem ég tel vera þingmeirihluta fyrir en það er ekki rétti þingmeirihlutinn. Það er vandamál varðandi stjórnarmeirihlutann að hann er ekki nægilega samstiga og það er sá þingmeirihluti sem þetta allt snýst um og þetta heldur svolítið okkur öllum hérna í sjálfheldu. Þau virðast ekki heldur tilbúin til að koma í umræður um mál sem við erum að fjalla um hérna. Við bara bíðum og sjáum hvernig meiri hlutinn, stjórnarmeirihlutinn í landinu, ætlar að koma sér saman um þinglok og hvernig hann ætlar að móta stefnuna hvað varðar ríkisstjórnina á næstu mánuðum, hvaða mál eiga að fara í gegn, hvaða mál vilja þau fá í gegn, hvaða mál eru þau sammála um að fá í gegn. Hvaða mál eru það? Það eru fleiri mál í samfélaginu, eins og t.d. hvalveiðar, ég tala nú ekki um strandveiðarnar og þá er spurningin: Hvað ætlar ríkisstjórnin að gera, hvað ætlar stjórnarmeirihlutinn að gera? Þetta lýtur að samstarfi sem er fyrir utan okkur í minni hlutanum að hafa áhrif á. Ég get ekki séð annað en að þau verði að ráða ráðum sínum, núna komin með nýjan forsætisráðherra, spurning hvort hann ætli að verða skammsettasti forsætisráðherra lýðveldissögunnar og við förum í kosningar eða ekki, það skal ósagt látið. En það er ekki okkar að ákveða það. (Forseti hringir.) Þetta er bara óvissa sem má ekki og getur ekki verið til lengdar. Það verða að koma skýrar línur núna varðandi þinglokin og ég tala nú ekki um fyrir næsta vetur.