innviðir markaða fyrir fjármálagerninga sem byggjast á dreifðri færsluskrártækni.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir góða ræðu. Honum varð dálítið tíðrætt um rafmyntir í sinni ræðu og hvað þyrfti til að verða gildur lögeyrir hér á landi. Það var einhver sem orðaði það þannig við mig að eiginlega helsti mælikvarðinn á það að vera gildur lögeyrir er að þú getur borgað skattana þína í þeirri mynt. En það er nú þannig að það eru notaðar aðrar myntir hér á landi, t.d. eru fjölmörg fyrirtæki hér á landi sem gera upp annaðhvort í dollurum eða evrum. Með öðrum orðum, þau stunda sín viðskipti í dollurum og evrum þannig að það er spurning um það hvort við séum í rauninni löngu farin að nota eitthvað annað en gamla ríkisdalinn til þess að borga fyrir hluti. En tengt þessu þá langaði mig að spyrja hv. þingmann um tækifærin sem hann sér. Nú getum við hugsað okkur að það sé til rafmynt sem er tengd íslensku krónunni. Við getum líka hugsað okkur að það sé til rafmynt tengd evru og dollar. Getum við ekki bara gert okkar gjaldmiðil miklu stærri en hann í rauninni er í dag með því að gera hann að rafmynt og þannig tryggt að önnur lönd fari að nota hann sem gjaldmiðil í stað þess að við fylgjum því sem annar hv. þingmaður hér inni, Sigmar Guðmundsson, vill, þ.e. að við tökum bara upp evruna? Eigum við ekki bara að taka upp íslensku rafkrónuna og gera hana að stórmynt um allan heim?