innviðir markaða fyrir fjármálagerninga sem byggjast á dreifðri færsluskrártækni.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Það geta allir stofnað rafmyntir. Við getum stofnað Gísla Rafn-„coin“ með gislarafncoin.is og séð hvort kaffihúsin í landinu og fiskbúðir landsins myndu taka á móti þessari mynt eða ekki, hvort það væri hægt að nota hana í viðskiptum. Það væri reyndar ekki lögeyrir í landinu. Lögeyrir í landinu er ákveðinn með lögum um lögeyri og það er rétt að mat á því hvort gjaldmiðill sé lögeyrir er hvort þú getur borgað skattana þína með honum. Það geturðu ekki gert með Bitcoin nema í El Salvador, held ég. Þú getur ekki notað Bitcoin hér. Það sem ég átti við var það að íslenska krónan yrði gerð að rafmynt, að hún myndi verða líka skráð sem rafmynt og þá gætu náttúrlega erlendir aðilar farið að nota íslenska krónu sem rafmynt. Ég veit hins vegar ekki alveg um kosti og galla þess að það yrði farið að nota hana erlendis en það myndi sýna ótvírætt ríkidæmi íslensks samfélags ef erlendir aðilar hefðu það mikið traust á íslensku krónunni að þeir myndu vilja nota hana í viðskiptum sín á milli eða geyma hana til að geyma verðmæti hreinlega af því að hún væri það stöðug, en sagan er ekki þannig. Það er mikil áhætta að geyma verðmæti í íslensku krónunni. Þó svo að innra gildi penings sé ekkert þá er hann ávísun á verðmæti á endanum. Allir gjaldmiðlar eru ávísun á verðmæti. Svissneski frankinn hefur verið mjög stöðugur og hann hefur verið notaður sem einn af heimsgjaldmiðlunum til að geyma verðmæti, vera ávísun á verðmæti.
Ég held að þróun rafmynta verði eins og með gjaldmiðla í Bandaríkjunum á 19. öld þegar bankar í Bandaríkjunum úti um allt villta vestrið og úti um allar koppagrundir þar voru að gefa út sinn eigin gjaldmiðil. Það voru margir gjaldmiðlar í gangi. Í Suðurríkjum var „the Confederate“ gjaldmiðillinn og svo var svokallaður „greenback“ sem var grænn að aftan sem er bandaríkjadollar í dag. Hann varð ofan á. Það verður alltaf einn ofan á. (Forseti hringir.) Þetta er eins og þegar þú ert með nýjan iðnað, það koma margir pizzastaðir og svo endar þetta í einum yfirleitt, það verður einn Dominos hjá okkur. Það mun gerast líka á Íslandi, (Forseti hringir.) íslenska krónan verði að rafmynt og í heiminum gæti orðið, sennilega á vegum Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, heimsrafmyntin. Ég held að það verði ekki íslenska krónan.