154. löggjafarþing — 117. fundur,  5. júní 2024.

innviðir markaða fyrir fjármálagerninga sem byggjast á dreifðri færsluskrártækni.

914. mál
[21:49]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P) (andsvar):

Forseti. Nei, ég held að það verði ekki íslenska rafkrónan sem verði alheimsmyntin. Ég held að það væri líka dálítið heppilegt vegna þess að eitt af því sem við höfum nú séð gerast, jafnvel í stærri hagkerfum en okkar, er hvernig menn fara að spila á gjaldeyrinn og gengi gjaldeyris þannig að sennilega erum við ekki að fara að bjarga heiminum með því að hafa íslensku rafkrónuna sem heimsgjaldmiðil.

En mig langaði aðeins að fylgja eftir andsvari frá hv. þm. Sigmari Guðmundssyni hér áðan sem var að ræða um það að það fengust engar umsagnir um þetta mál. Hér á landi er til t.d. íslenskur fjártækniklasi. Í honum eru nær öll þau fyrirtæki sem eru að stunda einhverja tækniþróun í kringum fjártækni og við erum líka með aðila eins og Klak – Icelandic startups sem þekkja t.d. öll þau nýsköpunarfyrirtæki sem eru að vinna í svona hlutum á Íslandi og eftir því sem ég best veit fékk hvorugur þessara aðila beiðnir um umsagnir og kannski vissu ekki einu sinni af því að þetta mál væri að fara í gegn. Mig langar að spyrja hv. þingmann: Hvernig getum við sem þing og sem þingmenn og nefndarmenn tryggt það að við látum alla viðeigandi aðila vita og fáum umsagnir frá þeim? Hvernig getum við bætt okkar vinnu hér inni til að gera slíkt?