154. löggjafarþing — 117. fundur,  5. júní 2024.

innviðir markaða fyrir fjármálagerninga sem byggjast á dreifðri færsluskrártækni.

914. mál
[21:51]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Ég er mjög hissa á því að þetta skyldi ekki hafa verið sent til Fjártækniklasans og líka þessa aðila sem hv. þingmaður nefndi. Ég er svolítið hissa. Ég hefði innan nefndarinnar óskað eftir því sérstaklega að fá umsögn um málið. Ég hefði reyndar farið fram á það við fjármálaráðherra og ráðuneytið að það hefði kynnt málið sérstaklega fyrir Fjártækniklasanum. Það er náttúrlega það sem fjármálaráðuneytið þarf að gera ef þetta frumvarp verður að lögum, að kynna þessa löggjöf sérstaklega, senda bara einfaldlega menn og konur út af örkinni sem kynni þetta fyrir Fjártækniklasanum, að hér sé komin mikilvæg löggjöf. Ég tel það mjög miður að það skyldi ekki hafa verið gert á sínum tíma. En það er hægt að gera það eftir á. Þetta er löggjöf sem skiptir mjög miklu máli upp á framtíðina og Ísland er með, við getum bara kallað það hlutfallslega yfirburði, er með forskot út af smæð sinni, út af tækniþekkingu hérna og út af því hversu þróað samfélagið er, til þess að nota þetta tilraunaregluverk í íslensku samfélagi. Íslenska samfélagið yrði þá tilraunasamfélag að hluta til fyrir þetta tilraunaregluverk. Ég get tekið dæmi sem mætti prófa þetta á. Það er náttúrlega rakið að nota þetta fyrir bifreiðaskrá, byrja þar. Íslensk stjórnvöld myndu segja: Við ætlum að taka x margar bifreiðar, setja þær inn í dreifða færsluskrá og byrja með viðskipti með bifreiðar í dreifðri færsluskrá og sjá hvernig það þróast. Það væri hægt að taka 25% í byrjun og svo bara auka það þangað til að öll bifreiðaskrá væri komin í dreifða færsluskrá. Það væri alger snilld að gera það þannig. Ég tel að það verði framtíðin og við gætum verið í fararbroddi hvað þetta varðar. Það er mjög einfalt að gera þetta á Íslandi, við erum það einfalt samfélag og smátt, það væri mjög einfalt mál.

Varðandi gjaldmiðil, (Forseti hringir.) rafmyntina, þá er ég alveg sannfærður um það að íslenska krónan fari yfir í rafmynt, Það mun gerast á einhverjum tímapunkti. (Forseti hringir.) Svíar eru þegar byrjaðir á þessu og það munu verða örlög íslensku krónunnar að hluta til.