innviðir markaða fyrir fjármálagerninga sem byggjast á dreifðri færsluskrártækni.
Frú forseti. Við ræðum mál sem er frumvarp til laga um innviði markaða fyrir fjármálagerninga sem byggjast á dreifðri færsluskrártækni. Áður en ég kem að frumvarpinu sjálfu langar mig að nefna eitt sem mér finnst teygja okkur aðeins út í stærri mynd. Þetta mál er lagt fram af einum ráðherra og svo er það í höndum annars ráðherra að fylgja því eftir, einfaldlega vegna þess að hér hafa menn farið í gegnum stólaskipti. Við verðum að nefna það hér, úr því að þannig stendur á, að þetta hefur verið svolítið leiðarstef þessarar ríkisstjórnar á kjörtímabilinu. Ég ætla að sjálfsögðu að fyrirgefa mönnum að stundum komi það upp að það breytist einhverjar áherslur og annað slíkt, en þegar við skoðum stóru myndina í þessu þá er það þannig að eftir síðustu kosningar þá þarf að bregðast við kosningasigri Framsóknarflokksins með einhverjum hætti á milli ríkisstjórnarflokkanna. Það er farið í það að fjölga ráðherrum um einn. Annar möguleiki hefði verið að jafna hlutföllin eftir kosningasigur Framsóknarflokksins og fækka í Stjórnarráðinu en það kom auðvitað ekki til greina. Það voru mikil umskipti á málaflokkum á milli manna og ráðuneyta. Við höfum verið að fá margar ábendingar um að þetta hafi staðið hinum ýmsum málum fyrir þrifum, þetta hafi komið í veg fyrir að það væri ákveðin samfella sem nauðsynleg er í framvindu mála. Þetta er staðreynd og í framhaldi af því förum við að verða vitni að því að það eru endalaus stólaskipti síðan til viðbótar við þetta á miðju kjörtímabilinu. afleiðingin af því er sú að þetta mál hér er lagt fram af einum ráðherra en svo er það annars úr öðrum flokki að fylgja því eftir. Ég er ekkert að halda því fram að þetta hafi einhver áhrif á þetta tiltekna mál. En mér finnst ágætt að halda þessu til haga í umræðunni um þetta allt saman.
Svo verð ég líka áður en ég fer í frumvarpið sjálft að fá að nefna, af því að hér er stuttur tími til þingloka, að ég sakna þess mjög almennt í vinnunni hérna á þingi að það skuli ekki vera meiri fyrirsjáanleiki þegar nær dregur þinglokum, að þingmenn skuli ekki fá að vita betur hvaða mál eigi að leggja áherslu á í þingnefndum og síðan inn í þingsal. Við erum endalaust og aftur og aftur, og það stefnir í það sama núna, að fara mögulega að afgreiða mörg mál í miklum flýti og þá verða mistök í lagasetningunni. Hin hliðin á þessu er sú að við getum verið alveg í þeirri stöðu að fullt af málum sem fólk og flokkar eru meira og minna sammála um ná ekki í gegn vegna þess að það er einhver innbyrðis störukeppni í gangi á milli stjórnarflokkanna og menn eru að beita þessu gagnkvæma neitunarvaldi sem við erum t.d. að sjá að getur leitt til þess að örlög Mannréttindastofu verði að engu. Við vitum ekki hvaða áhrif þetta hefur á lögreglulögin og nú sjáum við í fréttum í kvöld að mikilvæga löggjöf, verð ég að segja, um fiskeldið ná menn ekki að klára núna fyrir þinglokin. Þar erum við með undir heilmikla umhverfisþætti, við erum að stilla af löggjöf um atvinnugrein sem óx hér stjórnlaust eins og við þekkjum, án þess að stjórnvöld gæfu því nægjanlegan gaum hvernig mál myndu þróast. Þetta var með öðrum orðum á sjálfstýringu. Við erum síðan í þeirri stöðu að það eru allir sammála um að það þurfi að gera breytingar og það er vel hægt að ná samkomulagi um einhverjar breytingar en þessu á öllu að ýta mögulega fram á næsta vetur af því að einhver einn flokkur er að beita neitunarvaldi gagnvart einhverjum öðrum flokki. Mér finnst að við þurfum að vera svolítið með þessa forsögu í þessari umræðu sem við erum að taka hérna um þetta stórmerka mál sem við ræðum hér í þingsal í kvöld.
Þegar við ræðum þetta mál hefur svolítið verið komið inn á eitt sem mér hefur fundist dálítið forvitnilegt að heyra, það hefur komið fram hjá þingmönnum að við séum svolítið að missa af tækifærum þegar við erum í ýmsum innleiðingarmálum, þyrftum að hafa meiri virkni innan þingnefndanna til þess að kalla eftir og ýta á að umsagnaraðilar komi fyrir nefndina til þess að útskýra flókin mál. Ég hef hoggið eftir því að hér hafa þingmenn verið að tala um að það séu aðilar úti í samfélaginu sem mögulega hafi ekki vitað af þessu tiltekna máli en hefðu kannski getað dýpkað skilning nefndarmanna á efnisatriðum þess sem síðan hefði mögulega leitt til þess að einhver tækifæri hefðu myndast upp úr því, bæði hér í þingsal, mögulega í formi annarra mála frá þingmönnum. Við getum auðvitað séð fyrir okkur að möguleikarnir eru endalausir ef við ætlum að fara með þessa pælingu eitthvað áfram. Það var reyndar kallað eftir umsögnum, það var gert 12. apríl og gefinn frestur til 26. apríl. Það var send út umsagnarbeiðni til Alþýðusambandsins, Nasdaq verðbréfamiðstöðvar, Samtaka atvinnulífsins, Samtaka fyrirtækja í fjármálaþjónustu, til Seðlabankans og Viðskiptaráðs, en það eina sem kannski nefndarmenn höfðu síðan að vinna með voru gestakomur sem spruttu ekki upp úr þessum umsagnarbeiðnum og svo greinargerð sem birtist frá ráðuneytinu þar sem er verið að fara yfir ýmis efnisatriði þessa máls.
Við sjáum í 1. gr. frumvarpsins að markmið þessara laga er að koma á tilraunaumgjörð um útgáfu fjármálagerninga á grundvelli dreifðrar færsluskrártækni og sértækra leyfa til rekstrar innviða sem taka þá til viðskipta eða annast uppgjör slíkra viðskipta án þess að slegið sé af kröfum um vernd fjárfesta, fjármálastöðugleika og heilleika markaðarins. Og nú skulum við bara tala smá íslensku. Það er þannig í þingstörfunum að við þurfum að reiða okkur mjög mikið á sérfræðiþekkingu þeirra sem koma fyrir nefndir. Auðvitað koma hingað inn mjög flókin og tæknileg mál. Við erum að vinna þannig vinnu að við erum að setja lög og reglur sem hafa áhrif á alla anga samfélagsins. Málinu eru misflókin og misþung en mér hefur fundist aðeins í umræðu um þetta mál og málið sem við ræddum hér á undan að svona það eitt og sér sé kannski til marks um að það sé verið að kasta til höndunum í lagasetningunni eða vinnunni af því að allir þingmenn, hver og einn, séu ekki miklir sérfræðingar á því sviði sem rætt er um. En ég held nú einmitt að það sé ekki hægt að gera þá kröfu til allra þingmanna að þeir þekki hvert einasta mál og efnisatriði hvers einasta máls út í hörgul. En þegar við erum að taka inn mál sem tengjast veru okkar í Evrópska efnahagssvæðinu þá reiðum við okkur auðvitað svolítið á sérfræðiþekkingu sem kemur innan úr ráðuneytunum og það er í sjálfu sér ekkert óeðlilegt við það. En ég vil taka undir svona almenn hvatningarorð sumra þingmanna hér sem hafa talað um að það megi kannski vera þannig hjá okkur öllum þingmönnum og fleirum að kafa stundum dýpra í þessi mál og nýta þau tækifæri sem geta falist í þeim frekar en að hér sé um einhverja sjálfvirkni að ræða.
Hér hefur verið rætt um að hér undir séu bálkakeðjur og rafmyntir og ekki ætla ég að þykjast hafa djúpa þekkingu á þeim flókna heimi en umræðan hér áðan spannst til að mynda um það hvort íslenska krónan yrði einhvers konar rafmynt í framhaldi, studd af einhverjum rafmyntapælingum og gæti jafnvel styrkt stöðu sína þannig og jafnvel náð einhverri stærri stöðu sem gjaldmiðill í stórum heimi. Þá verð ég auðvitað að nefna í því samhengi að við vitum ekkert hvernig þessi tækni þróast, allar þessar lausnir og fjártæknin og rafmyntir og tæknin í öllu því. Við í sjálfu sér erum á þeim stað í tilverunni bara almennt að tækninni fleygir svo hratt fram að það sem við höldum í dag að muni gerast á morgun er erfitt að spá um. Það er stundum sagt að tæknin sé svolítið að þróast í mjög miklu margfeldi. Hitt veit ég hins vegar, af því að menn eru hér að tala um rafmynt og sveiflur á henni og bera saman við íslensku krónuna og annað, að eins mikilvægt og það er nú að fylgjast með allri þróun og framvindu í fjártækni og öllum þessum heimi þá megum við ekki gleyma því að það að tilheyra stóru myntsvæði í núinu er eitthvað sem við eigum að halda áfram að berjast fyrir eins og minn flokkur hefur verið að gera. Mér finnst ágætt að fá tækifæri til þess að nefna þetta hér af því að menn hafa farið um víðan völl þegar kemur að rafmyntum einmitt í tengslum við þetta tiltekna mál.
Síðan langar mig kannski rétt í lokin að nefna að ég myndi mjög gjarnan vilja sjá það hér í þingstörfunum almennt að þó að hér sé um að ræða einhvers konar innleiðingarmál, þó að við séum á þessum stað í þingstörfunum og þó að meiri hlutanum finnist að það eigi að vera hlutverk minni hlutans að bera hér uppi þingstörfin á meðan er verið að kokka upp einhvers konar samkomulag á milli flokkanna, þá sakna ég þess mjög að hingað skuli ekki koma stjórnarliðar og taka þátt í þessum mikilvægu og djúpu umræðum sem hér hafa verið um þessi mál. Ég er ekki að segja þetta mönnum til hnjóðs, alls ekki. Ég er bara að tala um það að heilbrigð skoðanaskipti á milli fólks, ekki bara á milli stjórnarandstöðuflokka heldur líka á milli stjórnar og stjórnarandstöðu og jafnvel innan stjórnarinnar hér í þessum þingsal opna augu okkar allra miklu meira, það víkkar umræðuna, það leiðir til þess að lagasetningin verður betri. Við erum með aðhald hvert af öðru, við erum að læra hvert af öðru. Mig langar t.d. að nefna það í þessu samhengi að við höfum, held ég, öll lært talsvert mikið af þeirri þekkingu sem hv. þm. Gísli Rafn Ólafsson hefur verið að miðla hér, bæði í þessu máli og því sem á undan var. Það er auðvitað þannig sem þetta á að vera. Ég vil beina þessum orðum til okkar allra þingmanna og ekki síst þeirra sem eru í stjórnarliðinu og hafa lítið látið sjá sig hér í þingsalnum í dag og í gær þrátt fyrir að hér sé helling að ræða, að þetta sé kannski eitthvað sem menn ættu að taka til athugunar.