154. löggjafarþing — 117. fundur,  5. júní 2024.

innviðir markaða fyrir fjármálagerninga sem byggjast á dreifðri færsluskrártækni.

914. mál
[22:06]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þm. Sigmari Guðmundssyni fyrir ræðu sína sem var um margt áhugaverð. Hann fór ansi breitt yfir sviðið og talaði um að við værum í þeirri stöðu að við þyrftum að spyrja okkur að því hvort hægt væri að ýta málum fram á næsta vetur, þeim málum sem eru í nefndum og við erum búin að vera að vinna þar og fá umsagnir og ræða við umsagnaraðila og fara yfir frumvörpin, sem ég tel að sé langstærsti hluti vinnu okkar. Ég ætla rétt að vona ekki því að það myndi bara þýða að þá þyrfti að flytja málin aftur á næsta þingi og fá aftur umsagnir og fara aftur í sömu vinnu og við erum búin að vera að sinna núna í vetur. Ég er sammála því að stjórnarþingmenn mættu láta sjá sig í umræðum um mikilvæg mál eins og um þetta mál, um innviði markaða fyrir fjármálagerninga sem byggjast á dreifðri færsluskrártækni sem er mikilvægt mál fyrir nýsköpun í landinu.

Það var mjög áhugavert að heyra það hjá hv. þingmanni þegar hann fór yfir listann yfir þá aðila sem fengu sendar umsagnarbeiðnir. Þar á meðal var Seðlabanki Íslands sem sendi ekki umsögn um málið og ég tel það ekki nógu gott af Seðlabanka Íslands. Kannski hafa þeir verið of uppteknir af því að vera að spá í stýrivextina, en það verða aðrir að svara því. Hann fjallaði líka um íslensku krónuna og mig langar að spyrja hv. þingmann um það. Gjaldmiðill er raunverulega bara eins og metrakerfið. Við tókum upp íslensku krónuna eða íslensku krónunni var breytt í danska krónu á Íslandi. Þá getum við sagt að það hafi verið 1 kílómetri í 1 danskri krónu. Núna erum við sennilega komin niður í það að þessi 1 króna í 1 kílómetra er um 2.000 krónur í 1 kílómetra. En það er ekki alveg það sem skiptir öllu máli, metrakerfið, og vissulega væri gott ef við værum með íslensku krónuna sem rafmynt, en það er verðmætasköpunin sem skiptir máli. (Forseti hringir.) Er hann ekki sammála því að það er verðmætasköpunin sem skiptir máli í íslensku samfélagi þegar við horfum til gjaldmiðlanna, gjaldmiðilsmálsins? Það er hún (Forseti hringir.) sem við höfum staðið okkur vel í og þetta frumvarp gæti gefið okkur gríðarleg tækifæri til verðmætasköpunar ef við nýtum þau nýsköpunartækifæri sem er verið að bjóða upp á, verði frumvarpið að lögum.