innviðir markaða fyrir fjármálagerninga sem byggjast á dreifðri færsluskrártækni.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Eyjólfi Ármannssyni fyrir hans innlegg í þetta. Hv. þingmaður talaði um Seðlabankann og að Seðlabankinn hafi fengið umsagnarbeiðni en ekki skilað inn og mig langar að nefna í því samhengi að maður hefur nú stundum skilning á því gagnvart ýmsum stofnunum samfélagsins sem eru að fá ansi margar umsagnarbeiðnir frá öllum nefndum þingsins á hverjum tíma. Ég get t.d. hugsað svolítið um Persónuvernd í því samhengi og jafnvel Seðlabankann líka. En síðan er það auðvitað þannig, eins og þingmaðurinn ýjaði kannski að hérna í smá kerskni, að Seðlabankinn er jú upptekinn við að reyna að halda utan um stöðugleikann í samfélaginu og er svolítið einn í því verkefni eins og við þekkjum því að ekki er stutt við hann af þeim sem það eiga að gera. Menn hafa hér verið að reyna að gera ábyrga kjarasamninga til að styðja við en ríkisfjármálin hafa kannski ekki borið þess merki. En þetta er pínulítill útúrdúr.
Auðvitað er ég algerlega þeirrar skoðunar, og finnst reyndar mjög áhugavert að þingmaðurinn hafi verið að nefna þetta í sínum ræðum, að það geta verið heilmikil nýsköpunarækifæri sem fylgja máli sem þessu. Við eigum auðvitað að vera með augun á því og reyna að efla það á öllum tímum og ekki bara í kringum þetta mál heldur flestöll önnur sem við erum með hér inni, ofur einfaldlega vegna þess að það sem við Íslendingar höfum í svo ríkum mæli er hugvit og menntun og það er sú stoð sem við erum að byggja okkar framtíðarverðmæti á. Verðmætasköpun í samfélaginu skiptir gríðarlega miklu máli en trúverðugleiki gjaldmiðilsins er hins vegar ansi stór kafli í þessu líka. Verðmætasköpun á Íslandi minnkar ekki þótt við skiptum um gjaldmiðil. Stöðugleiki hins vegar eykst og fyrirtæki og einstaklingar eiga auðveldara með að gera áætlanir fram í tímann. Mér finnst svolítið skrýtið að skilja það, vegna þess að við föttum það svo oft í okkar eigin lífi hversu mikilvægt það er í okkar fjármálum að geta gert plön fram í tímann, (Forseti hringir.) að við skulum ekki sjá heildarhaginn hjá samfélaginu öllu að komast út úr þessum sveiflum sem við erum í. Við erum bara að sjá þetta núna á þessu kjörtímabili, háu vextina og verðbólguna, (Forseti hringir.) miklu hærri vexti og miklu hærri verðbólgu en í löndunum í kringum okkur. Núna er hagkerfið að fara að lenda ansi harkalega og margir spá því að næsti vetur (Forseti hringir.) verði ekki sérlega góður, þannig að ég er ekki sammála því að gjaldmiðillinn skipti ekki máli. Það skiptir öllu máli (Forseti hringir.) að hafa trúverðugan gjaldmiðil í bland við þá verðmætasköpun sem svo sannarlega er til staðar í íslensku samfélagi.
(Forseti (JSkúl): Forseti minnir hv. þingmenn á að virða ræðutíma sem er takmarkaður í andsvörum.)