innviðir markaða fyrir fjármálagerninga sem byggjast á dreifðri færsluskrártækni.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Sigmari Guðmundssyni fyrir svarið. Vissulega er það verðmætasköpunin sem skiptir máli. En varðandi stöðugleika eða óstöðugleika íslensku krónunnar þá sagði bankastjóri Arion banka á dögunum að íslenska krónan hefði á undanförnum misserum verið nokkuð stöðug og ég er sammála því. Ég hef fylgst svolítið með íslensku krónunni og bæði gagnvart evru og norskri krónu hefur hún verið nokkuð stöðug. Hún hefur verið á bilinu svona 12,60 og upp fyrir rúmlega 13 undanfarið, var 15 í svolítinn tíma og er núna í kringum 13. Hún hefur verið stöðug á undanförum árum en hins vegar hefur saga íslensku krónunnar verið mjög slæm. Við búum í óstöðugu hagkerfi og það er m.a. vegna þess að við erum með jarðhræringar í Grindavík og núna erum við líka með háa stýrivexti. Ég tel það vera mikið á ábyrgð ríkisfjármálanna að við höfum ekki náð að keyra niður verðbólgu með réttum hætti og það virðist vera að við séum að festast í verðbólgu. Við skulum rétt vona að okkur takist að lækka stýrivextina núna í ágúst eða að Seðlabankinn taki ákvörðun um það. En ég vil bara segja að ef við förum að binda íslenskt hagkerfi við evru, þar sem eru þróuðustu hagkerfi heims, við auðlindahagkerfið, þá höfum við enga sveiflujöfnun. Við myndum jafnvel þurfa að fara í innri gengisfellingu eins og Eystrasaltsríki þurftu að gera eftir hrun 2008. Þau þurftu að lækka laun hjá opinberum starfsmönnum í staðinn fyrir að þau hefðu getað fellt gengið. Við eigum að nota þessi sveiflujöfnun sem íslenska krónan er en það er algerlega á okkar ábyrgð hver sagan er, algerlega á okkar ábyrgð og útgefanda krónunnar. Ég tel að það sé aðalatriðið.
Mig langar að spyrja hv. þingmann þar sem hann fór yfir mat sitt á stöðu stjórnarmeirihlutans og ég sá það í fréttum að flokkur hans er búinn að lýsa yfir stuðningi eða býðst til að hjálpa stjórnarmeirihlutanum svo að breytingar á lögreglulögum (Forseti hringir.) með lögreglufrumvarpinu nái fram að ganga: Hver var ástæðan fyrir því að hann kom með þessa yfirlýsingu? Telur hann að stjórnarmeirihlutinn (Forseti hringir.) ætli ekki að standa á bak við það frumvarp einn síns liðs?