154. löggjafarþing — 117. fundur,  5. júní 2024.

innviðir markaða fyrir fjármálagerninga sem byggjast á dreifðri færsluskrártækni.

914. mál
[22:32]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðu sína sem var um margt áhugaverð. Ég heyrði þarna nýtt hugtak, leikbreytir, sem ég hef ekki heyrt áður, þetta er gott orð. Hún talaði um, ef ég heyrði rétt, að þetta frumvarp gæti verið leikbreytir varðandi nýsköpun í fjártækni, þarna er verið að búa til eins konar, eins og segir hér, tilraunaregluverk fyrir innviði markaða sem byggjast á dreifðri færsluskrártækni. Hún kom inn á áhugaverðan hlut sem lýtur ekki bara fjármálagerningum heldur líka því að það sé möguleiki á að úthluta aflaheimildum í makríl í dreifðri færsluskrá. Það er vissulega vert að skoða það. Mér datt strax í hug gullhúðun, við hefðum getað breytt þessari innleiðingu og bætt því við að þetta myndi líka ná til úthlutunar aflaheimilda. Við hefðum líka getað bætt við t.d. hlutafélagaskrá og öðru slíku þannig að þetta myndi ekki verða með hefðbundnum hætti bara beint frá Brussel heldur með smá viðbót. Hún las líka upp úr reglugerðinni sjálfri sem var mjög áhugavert, að þetta verði endurskoðað, ef ég man rétt, árið 2026.

Mig langar að spyrja hv. þingmann að ákveðnu atriði sem er svolítið sérstakt í frumvarpinu. Gildistökudagur á þessum lögum kemur fram í 8. gr., að lög þessi öðlist gildi 5. júlí 2024. Við sjáum hver staðan er núna í ríkisstjórninni og í stjórnarmeirihlutanum og vissulega er í starfsáætlun gert ráð fyrir þinglokum næsta föstudag, sem er 14. júní, en það er ekkert víst að það verði miðað við þann gríðarlega fjölda mála sem ríkisstjórnin ætlar að koma í gegn. Gæti það ekki bara orðið þannig að við værum enn þá að störfum og þetta mál væri ekki afgreitt og gæti ekki orðið að lögum 5. júlí miðað við það hvernig staðan er á stjórnarmeirihlutanum (Forseti hringir.) og miðað við fréttir og stöðuna hér í þingsal?