154. löggjafarþing — 117. fundur,  5. júní 2024.

innviðir markaða fyrir fjármálagerninga sem byggjast á dreifðri færsluskrártækni.

914. mál
[22:35]
Horfa

Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir (P) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið þó að hann hafi bryddað upp á a.m.k. þremur umræðuefnum sem ég næ kannski ekki alveg að fara yfir á tveim mínútum. Mig langar til þess að ávarpa það síðasta sem hv. þingmaður sagði varðandi stöðuna á þinginu og annað. Það liggur fyrir að ríkisstjórnin er ekki sjálf búin að koma sér saman um það hverju hún vill reyna að ljúka fyrir þinglok sem eiga að vera eftir viku þannig að það er auðvitað allsendis óvíst hvað við náum að klára hérna og hvað ekki. Þetta markmið þarna er vitanlega sett með það fyrir augum að við klárum þetta mál og ég vona það svo sannarlega, þetta er gott mál, þetta er mikilvægt mál og ég treysti því að við náum að ljúka því þrátt fyrir, hvað eigum við að segja, þessi vandræði hjá ríkisstjórninni.

Mig langar aðeins að koma aftur inn á makrílinn og aflaheimildirnar og hvernig við getum nýtt þessa tækni þar. Það er nefnilega svo gott dæmi af því að þegar fiskstofnar ferðast svona um, fiskurinn náttúrlega fer bara þangað sem honum dettur í hug, þá er ekkert eitt ríki sem ræður yfir fiskinum og það er þannig í þjóðarétti að þá verða ríkin einfaldlega að koma sér saman um hvernig þau ætla að í sameiningu að tryggja að þessum stofnum verði ekki útrýmt. Þá liggur auðvitað beint við að nota tækni til að halda utan um það allt saman þar sem er engin miðlæg stýring og engin miðlæg skráning heldur nota akkúrat þessa tækni, dreifða færsluskrártækni, til að tryggja að það sé ekkert verið að möndla við gögnin þegar þau fara á milli og tryggja öryggi og stöðugleika upplýsinganna.

Ég ætla bara ítreka það að ég held að þessi tækni sé mjög til góða. (Forseti hringir.) Ég veit ekki, eins og kemur fram í greinargerð með þessu frumvarpi, hversu hún mikið mun nýtast á akkúrat þessu sviði varðandi þessa fjármálagerninga (Forseti hringir.) en það á bara eftir að koma í ljós. En það er alveg ljóst að þessi tækni nýtist gríðarlega vel og mun nýtast í framtíðinni enn betur á ýmsum sviðum.

(Forseti (JSkúl): Forseti minnir hv. þingmenn á að virða ræðutíma)