innviðir markaða fyrir fjármálagerninga sem byggjast á dreifðri færsluskrártækni.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið og þetta er vissulega mjög áhugaverð hugmynd og ég held raunverulega að það ætti að hafa öll viðskipti með kvóta, milli einkaaðila líka, í dreifðri færsluskrá. Ég veit að í tillögum fyrrverandi matvælaráðherra, hæstv. ráðherra Svandísar Svavarsdóttur, sem verður líklegast næsti formaður VG, maður veit það ekki, vildi hún að þetta yrði allt á opnum markaði, einum markaði. Það er alveg rakið að hafa úthlutun kvóta, aflaheimilda, í dreifðri færsluskrá og segja fyrir um það að öll viðskipti milli aðila verði í dreifðri færsluskrá. En varðandi það hvernig þetta verður í framtíðinni þá vitum við það ekki alveg. Ég vona að þetta mál nái fram að ganga og ég tel að það sé klárlega þingmeirihluti fyrir því en stóra spurningin er hvort stjórnarmeirihlutinn hafi komið sér saman um það. Það er ljóst að eftir að ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur fór frá þá virðist vera óvissa um hvort við séum með þingmeirihluta fyrir núverandi stjórn miðað við það sem maður heyrir í fjölmiðlum alla vega. Það var vissulega leikbreytir, svo ég noti það fallega orð sem hún kom með hér í ræðustól, að fyrrverandi forsætisráðherra fór í forsetaframboð.
Mig langar að spyrja hv. þingmann að því hvort hún telji þetta frumvarp vera leikbreyti varðandi nýsköpunarfyrirtæki og hvort Ísland gæti ekki spilað stórt hlutverk í þessum málum. Þetta regluverk felur í sér tilraunaumgjörð, svokallað „pilot regime“, fyrir fjármálagerninga í dreifðri færsluskrá. Er ekki Ísland rakið samfélag fyrir svona tilraunaverkefni miðað við smæð? Það þarf að keyra alla fjármálagerninga, alla umgjörð um fjármálagerninga, í raunheimi og sá heimur gæti verið Ísland.