raforkulög.
Virðulegur forseti. Ég vil nú byrja á því að óska hv. þingmanni til hamingju með að hafa loksins fengið tækifæri til að flytja þetta nefndarálit. Stóra breytingin sem lögð er til í nefndaráliti meiri hlutans snýst um að liðka fyrir því að stórnotendur geti tekið þátt í jöfnunarmarkaði orku hjá Landsneti, jöfnunarorkumarkaði eða aflsreglunarmarkaði eða hvað það nú heitir. Mig langar að spyrja hv. þingmann í fyrri atrennu hvaða áhrifamat fór fram á þessari breytingu og afleiðingum hennar og hvað þetta kunni að þýða fyrir verðþróun jöfnunarorku og þá sérstaklega kannski með tilliti til þess að hér er verið að leggja til breytingu á ákvæði sem lýtur að ákveðnum ráðstöfunum sem er ætlast til þess að gripið sé til áður en kemur til skömmtunar. (Forseti hringir.) Skilur hv. þingmaður þetta með þeim hætti og telur hann að áhrifin geti verið þau að í staðinn fyrir að gripið sé til skömmtunar þá geti komið til þess að stórnotendur (Forseti hringir.) selji orku á jafnvel uppsprengdu verði frekar en að almennum notendum sé komið í var með skömmtun?