154. löggjafarþing — 117. fundur,  5. júní 2024.

raforkulög.

348. mál
[22:59]
Horfa

Frsm. meiri hluta atvinnuvn. (Óli Björn Kárason) (S) (andsvar):

Herra forseti. Menn verða að hafa í huga að hér er verið að auka möguleika Landsnets til þess að tryggja það að orka sé til staðar eins og hægt er á hverjum tíma. Það er ekki þannig að stóriðjufyrirtæki, álver sem eiga ónotaða orku taki þá ákvörðun og taki upp á því og ætli að selja inn á jöfnunarmarkað. Það er Landsnet sem tekur þá ákvörðun. Ef hv. þingmaður er að velta fyrir sér verðinu þá veit hann jafn vel og ég að um það getur enginn spáð. Það eina sem við vitum eða það er kannski tvennt sem við vitum: Það er ekki starfræktur virkur viðskiptavettvangur með raforku hér á Íslandi. Við erum að reyna að feta okkur inn á það, vonandi á komandi næstu einu eða tveimur árum, og það mun skipta máli. En Landsnet rekur hins vegar markað fyrir jöfnunarorku sem er (Forseti hringir.) ætlað að stilla saman raforkuframleiðslu og raforkuþörf á hverjum tíma og verðþróunin þar hefur bent til þess að verðið hafi farið hækkandi (Forseti hringir.) og við megum búast við, því miður, við þær aðstæður sem við búum við núna að verð muni hækka á komandi árum.

(Forseti (BÁ): Forseti minnir ræðumenn í andsvörum á styttan ræðutíma.)