raforkulög.
Virðulegi forseti. Ég vil minna hæstv. forseta á að hv. þm. Óli Björn Kárason er með lengri ræðutíma en aðrir þingmenn vegna þess að hann hugsar og talar hægar en gengur og gerist hér í þingsal. (Gripið fram í.) Ég spurði auðvitað vegna þess að með þeim breytingum sem verið er að leggja til, ég get ekki skilið þetta öðruvísi, er í raun verið að þvinga Landsnet til að líta sérstaklega til möguleika stórnotenda til þátttöku á jöfnunarorkumarkaði áður en kemur til þess íþyngjandi úrræðis sem skömmtun er. Að því leytinu til er það ekki þannig að Landsnet muni hafa fullkomið sjálfdæmi um það. Það sem ég er að velta fyrir mér er í rauninni samningsstaða stórnotenda þegar kemur að því einmitt að verðleggja orkuna og við vitum að þegar Landsvirkjun hefur verið að opna á það, t.d. taka bannákvæði í samningum við stórnotendur úr sambandi tímabundið, þá er það í raun síðasta og dýrasta úrræði fyrirtækisins (Forseti hringir.) þegar kemur að því að verjast lágri stöðu miðlunarforðans. Þess vegna veltir maður fyrir sér þessu með verðið, hvort það verði hugsanlega það sama uppi á teningnum (Forseti hringir.) í samskiptum Landsnets við stórnotendur og hvort það geti þá orðið til þess að jöfnunarorkuverðið rjúki upp í hæstu hæðir.