154. löggjafarþing — 117. fundur,  5. júní 2024.

raforkulög.

348. mál
[23:02]
Horfa

Frsm. meiri hluta atvinnuvn. (Óli Björn Kárason) (S) (andsvar):

Hv. þingmaður veit það jafn vel og ég að þegar skortur er til staðar þá hefur varan eða þjónustan tilhneigingu til þess að hækka í verði. Það er ekki mikið sem hægt er að gera í því. Það sem við erum að reyna að gera lít ég á að sé forgangsverkefni atvinnuveganefndar og þar með þingsins við þær aðstæður sem nú hafa teiknast upp, annars vegar óhagstæðar ytri aðstæður varðandi vatnsbúskap o.s.frv. en líka vegna þess að við höfum ekki lagt grunn að því að mæta eftirspurn raforku með nægjanlegri framleiðslu raforku. Það eru engin ný sannindi í því og við þurfum að kannast við það og kannski tökum okkur saman í andlitinu hér saman og tryggjum aukna raforkuframleiðslu á komandi árum. En versta niðurstaðan fyrir heimili og fyrir lítil fyrirtæki sérstaklega er að það þurfi að grípa til skömmtunar (Forseti hringir.) og það að auka möguleika kerfis flutningsfyrirtækisins, Landsnets, til að reyna að koma í veg fyrir það er ráðstöfun sem ég held að sé skynsamleg.