154. löggjafarþing — 117. fundur,  5. júní 2024.

raforkulög.

348. mál
[23:04]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P) (andsvar):

Herra forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þingmanni framsöguna. Ég held það hafi komið mörgum á óvart sú staða sem skapaðist þegar kom í ljós að það var búið að selja umfram framboð í orkukerfinu okkar og eitthvað sem við mættum kannski skoða í framtíðinni hvernig gat gerst, hvers vegna engin yfirsýn var til að leiða markaðinn rétta leið þannig að við kæmumst ekki í óefni. En hér er komið eitt verkfæri til að ná utan um stöðuna sem getur myndast.

Mig langar að spyrja, vegna þess að skýrasta dæmið þar sem sjokkið kom fram voru rafkyntu hitaveiturnar á Vestfjörðum sem gátu ekki lengur aflað sér orku úr vatnsafls- og jarðvarmavirkjunum eins og venjulega heldur þurfti að fýra upp í olíukötlum til að skila heitu vatni til íbúa á Vestfjörðum: (Forseti hringir.) Er skýrt í frumvarpinu eins og það liggur fyrir að þessar hitaveitur flokkist sem mikilvægir samfélagsinnviðir (Forseti hringir.) og muni þar með njóta forgangs þegar kemur til skerðingar? Eða munu þær flokkast sem aðilar sem hafi samið um skerðanlega notkun (Forseti hringir.) og njóti þar með ekki forgangs og áfram þurfi að brenna olíu til að halda hita á heimilum á Vestfjörðum?