154. löggjafarþing — 117. fundur,  5. júní 2024.

raforkulög.

348. mál
[23:07]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P) (andsvar):

Herra forseti. Ég er hræddur um að þetta sé ekki nógu gott. Stærsta, langstærsta augljósa dæmið gagnvart almenningi varðandi ruglið sem fólst í orkuskorti síðustu tvo vetur var akkúrat það að fjarvarmaveitur þyrftu að fýra upp í olíukyndingu. Það var það sem ég hélt að almenningi þætti eðlilegt að standa vörð um. Ef málið er að koma frá nefndinni og það er enn þá óljóst hvort reglugerðir ráðuneytis muni skilgreina þessar fjarvarmaveitur sem forgangsaðila eða ekki (ÓBK: Ég var einmitt að segja það …) — ef það er ljóst að það verði ekki þar undir; hver er þá tilgangurinn með þessu frumvarpi? Ef það er ekki verið að standa vörð um heimilin á Vestfjörðum, sem ég hélt að hefði kannski dálítið verið hvatinn að því að fara í þessa vegferð, hverju erum við þá að ná fram?