raforkulög.
Ég skil alveg það sem hv. þingmaður er að segja en þetta er aðeins flóknara en svo að það verði leyst með þessu litla frumvarpi. Við erum fyrst og síðast að reyna að ná utan um það að skilgreina betur hverjir njóta forgangs þegar kemur að raforku. Það er alveg ljóst að það eru fjarvarmaveitur sem hafa ekki samið um skerðanlega orku og njóta þar af leiðandi forgangs, enda uppfylli þau önnur skilyrði sem við erum að setja hér. Það er ákvörðun á hverjum stað, því miður. Ég sé því miður að það verði meiri flækja að gera það sem hv. þingmaður er að láta sig dreyma um. Ég held að það þurfi að koma til sérstakar aðgerðir (Forseti hringir.) til að styðja það með beinum hætti. En það verður þá að tryggja að jafnræðis sé gætt, annars vegar milli þeirra (Forseti hringir.) fjarvarmaveitna sem ekki hafa samið um skerðanlega orku og borga hærra verð og þeirra sem hafa samið um skerðanlega orku en borga lægra verð.