raforkulög.
Herra forseti. Við erum að tala um mál sem er ætlað að tryggja ákveðin viðbrögð við orkuskorti og og hv. framsögumaður og þingmaður, Óli Björn Kárason, hefur verið óþreytandi að benda á hið augljósa; að því meira sem er framleitt af orku, því meira verður til af orku. Mig langaði til að forvitnast um það hvort þingmaðurinn þekkti góða vinnu Evrópusambandsins í þessu máli þar sem er til ákveðin tilskipun sem á ensku kallast, með leyfi forseta, „Renewable Energy Directive“ þar sem kveðið er á um að þjóðþing geti við ákveðin skilyrði við afgreiðslu á orkukostum sett þau í hraðafgreiðslu. Skilyrðin eru ekki síst ef um er að ræða græna orkukosti og varða þjóðhagslega hagkvæma framleiðslu og verkefni. Ég veit að hv. þingmaður kemur úr flokki sem hefur búið til ákveðna grýlu úr Evrópusambandinu en mig langar engu að síður að forvitnast um það, (Forseti hringir.) af því að þetta er ekki eina málið sem hv. þingmaður er framsögumaður að sem varðar orkumál, hvort verið sé að skoða þessa leið á einhvern hátt. (Forseti hringir.) Ég leyfi mér t.d. að nefna hversu mörg verkefni sem farið hafa í nýtingarflokk í rammaáætlun (Forseti hringir.) lenda síðan í, ég ætla kannski ekki að segja mótbyr en a.m.k. blankalogni þegar kemur að næstu skrefum.
(Forseti (BÁ): Forseti minnir á að það hafa allir ræðumenn í þessum andsvörum farið langt yfir ræðutímann og biður forseti ræðumenn að gæta þess.)