154. löggjafarþing — 117. fundur,  5. júní 2024.

raforkulög.

348. mál
[23:11]
Horfa

Frsm. meiri hluta atvinnuvn. (Óli Björn Kárason) (S) (andsvar):

Herra forseti. Ég lít nú ekki á Evrópusambandið sem einhverja grýlu. Ég kann að meta margt sem frá Evrópusambandinu kemur, ég ætla bara að standa utan við það. En ég ætla að líka að njóta þess að eiga samvinnu og góða og nána samvinnu við Evrópusambandið. Það sem hv. þingmaður nefnir er auðvitað alveg kórrétt og ég held að við eigum að sækja fyrirmynd í þessum efnum þegar kemur að grænni orku og ryðja úr vegi hindrunum þegar kemur að grænni orku, orku sem við ætlum að nota til orkuskipta o.s.frv. og ég veit ekki betur en að sú vinna sé í gangi í ráðuneyti orkumála.

Ég veit að ég og hv. þingmaður erum sammála um það líka að þegar kemur að rammaáætlun þá kannski þurfum við einnig að horfa til þess, bæði þegar kemur að vatnsafli, jarðvarma og hugsanlega vindi, að við séum ekki með alla okkar orkuframleiðendur hér á litlu svæði sem einkennist af jarðskjálftum, (Forseti hringir.) eldgosum o.s.frv. Við þurfum líka að fara að horfa á að dreifa því út frá þjóðaröryggi hvar þessar virkjanir eru staðsettar.