154. löggjafarþing — 117. fundur,  5. júní 2024.

raforkulög.

348. mál
[23:15]
Horfa

Inga Sæland (Flf) (andsvar):

Herra forseti. Það er þó ánægjunnar virði að það eigi að fara að reyna að tryggja orku til heimila landsins en spurning mín er þessi: Hver ber ábyrgð á þeirri stöðu sem er uppi núna? Er raunverulegur orkuskortur í landinu? Hvað er mikið framleitt af orku sem hefur ekki náðst að koma í kerfið, í dreifingu? Sem varaformaður atvinnuveganefndar á síðasta kjörtímabili fékk ég þær upplýsingar hjá Landsneti að það væri hátt í 30% af orkunni sem kæmist ekki í dreifingu þannig að eins og ég sé það er verið að búa til einhverja skortstefnu sem á ekki við rök að styðjast og hugsanlega verið að byrja á öfugum enda þegar alltaf er verið að hrópa á að virkja meira, virkja meira. Auðvitað eigum við að virkja ef við þurfum að virkja. Það er ekki spurning um það. Spurning mín er þessi: Hver ber ábyrgðina? Og er það ekki rétt að það er stórkostlegur skortur á því að við komum almennilegri dreifingu á rafmagnið sem við þegar erum að framleiða þannig að við séum ekki að hrópa að hér sé orkuskortur?