154. löggjafarþing — 117. fundur,  5. júní 2024.

raforkulög.

348. mál
[23:18]
Horfa

Inga Sæland (Flf) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Ég hygg að það séu u.þ.b. fimm ár síðan við heimsóttum Landsnet í atvinnuveganefnd sem var þá ekki bara með á teikniborðinu heldur var allt saman tilbúið. Það skorti ekki þeirra vilja til þess einmitt að styrkja og gjörsamlega koma á þessu dreifikerfi, hvort heldur sem var vestur á firði eða suður á nes þar sem við nánast höfum verið að glíma við köld svæði á köflum, eins og við vitum, og gríðarlegan orkuskort. En spurningin er þá þessi: Er það ekki á ábyrgð stjórnvalda í raun og veru ef það eru t.d. einstaka aðilar sem neita hreinlega að heimila lagnir í gegnum sína landareign? Þá eigum við nú klásúlu sem heitir bara eignaupptaka með því að borga fyrir það. Erum við ekki með því að draga svona lappirnar og jafnvel vera í áratugi í málaferlum eins og er hérna suður frá að spara aurinn og fleygja krónunni, með því hreinlega að ganga ekki hreint til verks og bara framkvæma það sem við þurfum að gera til að koma almennilegu rafmagni á fyrst við erum svona heppin og farsæl að eiga möguleika á því?