raforkulög.
Herra forseti. Nú er það stundum þannig að það eru sveitarfélög sem hugsanlega af ýmsum ástæðum, skipulagsástæðum, vilja hafa áhrif á það hvernig línur eru lagðar, hvar o.s.frv. og menn geta staðið í endalausum deilum. Það er hins vegar rétt hjá hv. þingmanni að með einhverjum hætti þurfi að höggva á hnútinn en við höfum hins vegar ekki verið tilbúin til þess að breyta leikreglum og lögum til þess að flýta framkvæmdum. Alveg eins og hv. þm. Hanna Katrín Friðriksson sagði áðan þá þurfum við auðvitað að huga að því að búa hér til löggjöf sem tryggir framgang, einhvers konar flýtiframgang orkuframkvæmda sem byggir á grænni orkuöflun til orkuskipta og getum sótt í fyrirmynd til Evrópusambandsins, sem ég er algjörlega ófeiminn við. Það er allt í lagi að taka það sem gott er frá Evrópusambandinu og henda öllu hinu vonda. En ábending hv. þingmanns er réttmæt og henni verður ekki mótmælt.