154. löggjafarþing — 117. fundur,  5. júní 2024.

raforkulög.

348. mál
[23:21]
Horfa

Hanna Katrín Friðriksson (V):

Herra forseti. Við erum að ræða hér frumvarp til laga um breytingu á raforkulögum með það að markmiði að styrkja raforkuöryggi almennings. Eins og fram hefur komið hjá framsögumanni, hv. þm. Óla Birni Kárasyni, þá var þetta frumvarp flutt á síðasta þingi en náði ekki fram að ganga og er nú endurflutt með ákveðnum breytingartillögum sem komu við meðferðina á síðasta ári. Flutningsmenn þessa frumvarps eru með því að stíga skref í samræmi við tillögur starfshóps sem hefur fjallað um orkuöryggi á heildsölumarkaði fyrir raforku. Það er verið að leggja til breytingar á raforkulögum sem snúa að því, eins og fram kemur í nefndaráliti meiri hlutans, að tryggja almenningi og smærri fyrirtækjum forgang ef kemur til skömmtunar vegna óviðráðanlegra orsaka og önnur úrræði eru ekki tiltæk. Enn fremur er í málinu mælt fyrir um söfnun og miðlun upplýsinga sem varða raforkuöryggi á heildsölu- og smásölumarkaði. Kveðið er á um viðmið fyrir raforkuöryggi og öflun og miðlun upplýsinga um stöðu á heildsölumarkaði raforku. Þetta er það mál sem við ræðum hér. Það er rétt að geta þess að þetta er eitt af nokkrum málum sem varða breytingar á raforkulögum sem hafa komið til kasta atvinnuveganefndar Alþingis í vetur og ég tala nú ekki um á kjörtímabilinu. Sum hver staldra kannski stutt við og ekki öll koma fullbúin, svo að segja, hingað inn í þingsal.

Mig langar til að vísa aðeins í texta úr umsögn Landsvirkjunar, með leyfi forseta. Þar segir:

„Fagnaðarefni er að raforkuöryggi sé nú í brennidepli stjórnvalda en á síðustu árum hefur nýting virkjana farið jafnt og þétt vaxandi og eftirspurn vaxið hraðar en sem nemur auknu framboði. Afleiðingin er minna svigrúm til að bregðast við áföllum í vinnslu- og flutningskerfi raforku eða óvæntri minnkun á framboði til almennra notenda, t.d. ef vexti í orkusækinni starfsemi fylgir ekki aukin orkuöflun. Landsvirkjun er þeirrar skoðunar að þetta ástand sé ekki tímabundið og að mikilvægt sé að brugðist verði við með lagabreytingum sem tryggi markvissari umgjörð um raforkuöryggi.“

Þetta er það sem er undirliggjandi í þessu máli.

Framsögumaður hefur farið yfir aðdraganda málsins, vinnu atvinnuveganefndar sem hefur haft málið til umfjöllunar í vetur og síðan þetta nefndarálit meiri hlutans með breytingartillögum þess sama meiri hluta. Þar kennir eðlilega ýmissa grasa og framsögumaður fór býsna nákvæmlega yfir málið í ræðu sinni þannig að mig langaði til að stikla á stóru um ákveðna kafla nefndarálitsins og hafa einhver orð um það. Það kemur fram t.d. að nefndin var upplýst um það að á vegum ráðuneytisins sé unnið að því að endurskoða allt regluverk raforkumarkaðarins og stuðla að því að auka orkuöryggi þjóðarinnar, þetta sé margþætt langtímaverkefni og ráðuneytið stefni að því að leggja fram fleiri frumvörp á komandi löggjafarþingum. Svo segir, með leyfi forseta: „Meiri hlutinn hvetur til þess að vinnu ráðuneytisins sé hraðað …“

Ég get alveg tekið undir þá hvatningu, að það sé eðlilegt að hraða þessari vinnu en, eins og ég kom inn á í andsvari við framsögumann hér áðan, að þetta er ekki ólíklega á lokametrum samstarfs þessara flokka hér sem hefur varað í sex og hálft ár og menn eru kannski að reima á sig hlaupaskóna svolítið seint þegar kemur að þessum tilteknu málum af því að þetta hefur síðan litað svolítið vinnuna við þetta allt.

Það er auðvitað að ýmsu að huga. Það þarf að tryggja að inngrip stjórnvalda gangi ekki lengra en þörf krefur. Það þarf að tryggja að fyrirkomulag þessara mála hér raski ekki samkeppni og að hugað sé að almennum jafnræðisreglum. Það þarf að reyna eins og kostur er að lágmarka kostnað sem fylgir óhjákvæmilega því að tryggja orkuöryggi. Það þarf að tryggja að við förum vel með auðlindir, að við sóum ekki orkuauðlindum og göngum ekki á auðlindirnar þannig að við skilum þeim illa frá okkur. Við þurfum að tryggja hlut heimila og smærri fyrirtækja sem eru í beinni samkeppni við stórfyrirtæki um raforkuna og þar þarf bæði að ræða orkuöryggið og síðan verðlagningu til þessara sömu heimila og smærri fyrirtækja um land allt. Og þetta er náttúrlega gríðarlega pólitískt atriði. Það er bara hálf sagan sögð þegar sagt er að eina verkefnið hér sé að tryggja heimilum og smærri fyrirtækjum raforku. Þá er bara hálf sagan sögð vegna þess að þetta skiptir máli, auðvitað og ekki síst jafnræði milli búsetu á landinu en líka það að orkueftirspurnin sem er endalaus eftir grænni orku hafi ekki þau áhrif að hér fari verð á orku til heimila og smærri fyrirtækja upp úr öllu valdi. Það má a.m.k. ekki gerast án nauðsynlegrar pólitískrar umræðu og pólitískra átaka sem eru grundvöllur þess oft að mál þroskist.

Ég kom aðeins inn á í andsvari mínu áðan ógegnsæi íslensks raforkumarkaðar. Aftur kem ég að því að fara að tala um að það þurfi að hafa upplýsingarnar á borðinu og a.m.k. lágmarka það að þær séu rangar ákvarðanir teknar á grunni misvísandi upplýsinga eða upplýsingaskorts. Vissulega má segja, eins og kom fram í svari hv. þm. Óla Björns Kárasonar, að þetta mál er jú eitt skref í þá átt. En það er gríðarlega mikilvægt að laga þessi gagnamál raforkugeirans.

Síðan kemur fram í áliti meiri hlutans að hann undirstrikar að þótt inngrip eins og skömmtun geti verið nauðsynlegur öryggisventill í markaðsbresti séu þau ekki æskileg á samkeppnismarkaði með raforku. Eðlilegast sé að stjórnvöld og aðilar orkumarkaðarins eigi samvinnu við að breyta núverandi fyrirkomulagi orkuviðskipta og færa það í eðlilegt horf til framtíðar og tekur meiri hlutinn þar með undir ábendingar frá Elmu orkuviðskiptum ehf. um að setja verði ramma fyrir heildsölumarkað sem gefi vísbendingar um verð og þróun eftirspurnar.

Þarna kem ég aftur inn á það að í fyrsta lagi liggur það fyrir að markaðsviðskipti útrýma ekki skorti. Þau geta haft ákveðin jákvæð áhrif í för með sér en það er algerlega af og frá að við umgöngumst þá vöru, ef ég leyfi mér að kalla orku til heimila og smærri fyrirtækja vöru, eins og hverja aðra markaðsvöru þar sem við látum bara framboð og eftirspurn mynda skurðpunkt og þar sé verðið ákveðið. Það verður að koma fleira til og þar ber pólitíkin ábyrgð. Það þarf líka að gæta þess í umræðunni um markaðsviðskipti — og nú er ég ekki andvíg markaðsviðskiptum, sannarlega ekki, ég er bara meðmælt því að þau séu unnin almennilega og þá sé tekið tillit til sem flestra þátta — að framleiðsla með raforku og viðskipti með orkuna eru auðvitað nátengd nýtingu þjóðarauðlindanna og hvernig við umgöngumst þær. Við þurfum að gera það á sjálfbæran hátt. Síðan þarf auðvitað að tryggja að arðurinn af þessari nýtingu náttúruauðlinda renni til þjóðarinnar, rétt eins og í baráttunni um arðinn af nýtingu sjávarauðlindanna. Það er líka pólitík sem verður ekki skilin frá umræðu um orkumál þjóðarinnar.

Það eru mikilvæg önnur atriði sem koma fram. Það þarf að kortleggja eftirspurnina á markaði. Það þarf að leita upplýsinga hjá hagaðilum. Það liggur auðvitað fyrir mikilvægi þess að það gerist ekki sem við lentum í að ákveðnu leyti síðastliðið haust a.m.k., ég ætla að hafa vaðið fyrir neðan mig hér og tala um a.m.k., og kom fram í fréttum að það væri verið að selja orku sem ekki væri til. Það þarf náttúrlega að tryggja að slíkt gerist ekki, a.m.k. ekki í skjóli, ég ætla ekki að segja í skjóli nætur en í skjóli skorts á upplýsingum og í skjóli skorts á gegnsæi.

Síðan er það rétt sem hefur komið fram auðvitað að aukinni eftirspurn eftir raforku vegna atvinnuuppbyggingar, mikilvægrar atvinnuuppbyggingar oft og tíðum, en ekki síður orkuskiptanna, verður ekki eingöngu mætt með aukinni orkuframleiðslu heldur þarf að styrkja flutningskerfið og auka sveigjanleika kerfisins og öryggi og auka nýtnina.

Það eru hér atriði sem varða raforkuspárnefnd. Í frumvarpinu er lagt til að ráðherra feli flutningsfyrirtækinu, þ.e. Landsneti, að vinna að sjálfstæðri raforkuspá og mati á raforkuöryggi til skemmri og lengri tíma. Þetta skuli vera opinber raforkuspá og þar skuli vera lagt mat á raforkuöryggi á heildsölumarkaði út frá áætlaðri þróun á framleiðslugetu og eftirspurn. Það er sem sagt verið að færa raforkuspána til Landsnets þannig að það sé ekki beinlínis raforkuspá Orkustofnunar sem er grunnur að mati á raforkuöryggi. Þá þarf auðvitað að hafa í huga samkeppnislög vegna þess að vinnslufyrirtæki eru auðvitað hagaðilar, hvort þau geti komið að þessum raforkuspám vegna samkeppnislaga. Síðan er landspá frá Landsneti sem liggur til grundvallar þegar Landsnet leggur sína kerfisáætlun inn til Orkustofnunar. Þetta eru bara einhverjir hlutir sem þarf að skýra af því að það voru ekki vinnubrögð til eftirbreytni.

Breytingartillögurnar eru í grófum dráttum tvær, annars vegar sú sem farið var yfir hér áðan, þessi aukna heimild til samninga við markaðsaðila, þ.e. að bætt verði við skilgreiningu á markaðsaðila við raforkulögin. Með leyfi forseta:

„Til markaðsaðila teljast vinnslufyrirtæki, flutningsfyrirtæki, dreifiveitur, sölufyrirtæki og stórnotendur í skilningi laga þessara og hver sá einstaklingur eða lögaðili sem stundar viðskipti með raforku í heildsölu.“

Þarna er verið að bæta markaðsaðila inn í stað orðsins vinnslufyrirtæki. Það er breytingartillagan sem hljóðar svo.

Við meðferð málsins hjá atvinnuveganefnd kom nokkrum sinnum fram að mögulega hefði verið hægt að komast hjá þessum aðstæðum sem sköpuðust í vetur eða haust, orkuskorti og skerðingum, ef væri til staðar virkur markaður fyrir raforku. Meiri hlutinn tekur í áliti sínu undir þau sjónarmið. Aftur vantar mig þar rökin á bak við. Hann telur að á meðan verið er að bíða eftir skýrri löggjöf um hina stóru mynd þá þurfi að auka sveigjanleika til viðbragða á markaði svo hægt sé að bregðast við orkuskorti án þess að stjórnvöld telji sig tilneydd til að grípa inn í, m.a. með því að gera stórnotendum kleift að selja orku aftur inn á kerfið til kerfisstjóra. Þetta er sem sagt heimild sem er ekki til staðar í raforkulögum í dag og það er þá gerð sú breyting að það verði vísað til markaðsaðila í stað vinnslufyrirtækjanna. Meiri hlutinn telur að með lögfestingu þessarar breytingar verði greitt fyrir mögulegri þátttöku stórnotenda í jöfnunarorkumarkaði flutningsfyrirtækisins, þ.e. Landsnets.

Þetta er eitt af því sem mér hefur ekki þótt nægilega skýrt hverju breyti í því máli sem við erum með hér. Ég átta mig á því að þetta er eitt skref í átt að einhverju fyrirheitna landi í einhverjum skilningi. En af hverju þetta er hér í þessu máli er svolítið óljóst í mínum huga. Það er t.d. þannig að í flestum samningum Landsvirkjunar núna við stórnotendur er kveðið á um að þeir megi ekki selja frá sér orku inn á kerfið, sennilega samningsákvæði sem standa óhögguð þó svo að þetta fari í gegn. En það sem kannski meira er er að í byrjun febrúar á þessu ári, vegna þeirrar stöðu sem uppi var, þá féll Landsvirkjun tímabundið frá þessu banni og heimilaði stórnotendum að selja frá sér orku sem þeir væru ekki að nota ef svo bæri undir. Þetta gilti síðan til loka apríl. En ég held að það séu engin dæmi um endursölu inn á kerfið. Stórnotendur eru einfaldlega að nota þá orku sem þeir fá sjálfir og gott betur, fá ekki alla þá orku sem þeir vilja af því að ef það er skortur þá er skortur. Síðan er náttúrlega hitt sem kom fram í máli þessara stórnotenda að það er akkúrat þessi síðasti dropi af orkunni raunverulega, þessar síðustu megavattsstundir sem eru þeim svo dýrmætar af því að þá eru þeir búnir að borga upp annað. Ef þeir eru til í að selja, ef þeir eiga eitthvað aflögu þá er það sannarlega ekki ódýrt. Tölur á borð við, ég man ekki hvað, fimm sinnum kaupverðið heyrðust til nefndar. Þá erum við aftur komin að þessari bullandi pólitík sem felst í því að segja: Þetta snýst ekki bara um orkuna, þetta snýst um verð á orku þegar um er að ræða heimili landsins alls staðar á landinu og fyrirtækin. Umræðan þarf að fara þangað, við þurfum að ræða þetta á þeim nótum áður en við opnum eitthvað sem er mögulega — og nú ætla ég sannarlega ekki að gera því skóna að þetta mál sé þannig en við þurfum alla vega að hafa vara á okkur að opna ekki eitthvert pandórubox hér.

Hin breytingartillagan felur í sér nýja skilgreiningu á forgangshóp. Það kom fram við meðferð málsins hjá okkur í atvinnuveganefnd að Landsnet hefði sett ákveðin viðmið fyrir skömmtun raforku ef upp koma þessi ófyrirséðu atvik, að flutningsfyrirtækið getur eingöngu skammtað magn til viðskiptavina sinna sem eru stórnotendur og dreifiveitur en ekki til almennra notenda. Það kom fram hjá nefndinni að þegar kæmi að heimilum og smærri fyrirtækjum væru það dreifiveiturnar sem skömmtuðu. Sú dreifing byggist á skömmtun flutningsfyrirtækisins. Þetta hangir svona svolítið hvort á öðru.

En það var farið í að skoða þetta, nýja skilgreiningu á forgangshóp, og meiri hlutinn leggur sem sagt til í þessari breytingartillögu að komi til skömmtunar þá njóti forgangs mikilvægir samfélagsinnviðir, heimili og smærri fyrirtæki sem teljast ekki til stórnotenda. Fyrir breytingartillöguna var skilgreiningin á forgangshópi sú að þeir sem ættu að njóta forgangs við skömmtun væru notendur sem keyptu raforku til heimilisnota, mikilvægir samfélagsinnviðir og fyrirtæki með færri en 50 starfsmenn og ársveltu eða efnahagsreikning sem er ekki yfir 1,5 milljörðum og hafi ekki samið um skerðanlega orku. Þetta er töluverð breyting og hún gerir auðvitað frumvarpið að ákveðnu leyti, ef ég má segja svo, framkvæmanlegra en áður þar sem dreifiveitan átti að vera með á hreinu starfsmannafjölda og veltu og leita upplýsinga um það. Það er töluverð vinna, meira að segja í okkar litla samfélagi. En með þessum breytingum sem hér er talað um, að fara yfir í það að við skömmtun skulu njóta forgangs heimilisnotendur, mikilvægir samfélagsinnviðir og aðilar sem ekki hafa samið um skerðanlega notkun, engin töluleg viðmið, þá erum við kannski komin með línu á hinum almenna markaði á milli þeirra sem fá forgang og þeirra sem fá ekki forgang. Það er svolítið óljóst í mínum huga hver hnikar þeirri línu til og hvernig það er gert. Er það reglugerð? Er það pólitísk sýn hverju sinni? Hvernig er það gert?

Síðan er bætt við nýrri málsgrein í breytingartillögu hjá meiri hlutanum sem segir að Raforkueftirlitið skuli halda opinbera skrá yfir þá notendur raforkunnar sem eru skilgreindir sem mikilvægir samfélagsinnviðir og það síðan auglýst í B-deild Stjórnartíðinda, að fenginni staðfestingu ráðherra, og skráin uppfærð á a.m.k. tveggja ára fresti. Þetta varpar fram spurningunni: Hvað um matvöruverslanir, banka, matvælavinnslu, stóra vinnustaði? Hvar drögum við línuna? Ein matvöruverslun á einhverju x margra fermetra svæði eða einhverju þéttbýli? Þetta eru hlutir sem ég myndi kannski ekki endilega vilja hafa galopna í reglugerð, svo ég segi það. Þetta er eitt af því sem þarf að vinna. Ég ætla samt að halda því til haga að það var nú almennt þannig og kom fram í máli gesta að þeir voru sáttir við það að hverfa frá talningunni, starfsmannatalningunni eða veltutölum upp á 1,5 milljarða. Það væri betra að reyna að velta fyrir sér starfseminni sjálfri en það þarf líka að vera skýrt og vera góð sátt um það við hvað er miðað, þótt við gerum okkur án nokkurs vafa velflest vonir um að það komi ekki til þessa.

Frá mínum bæjardyrum séð og okkar í Viðreisn er þetta í grófum dráttum skref í rétta átt, þó með þeim athugasemdaatriðum sem ég hef bent á. En það er auðvitað rétt að hvetja stjórnvöld til að hraða — það er nú einhver þversögn fólgin í því svona á lokametrunum að hvetja þau til að drífa sig í að gera hlutina — endurskoðun á raforkulögum til að koma í veg fyrir frekari bútasaum sem er síst til þess fallinn að ná markmiðum um einföldun og skýrleika í þessari löggjöf. Og það er líka bara mjög hætt við því, ég segi þetta af reynslu af störfum í atvinnuveganefnd undanfarna vetur, að þegar ógagnsæið er jafn mikið og raun ber vitni og margt svo óskýrt, jafnvel bara hugtakanotkun, þá er hætta á mistökum og hætta á að það renni eitthvað í gegn sem við ætlum ekki að láta renna í gegn eða að við sleppum einhverju augljósu sem við höfum hug á bregðast við.

Þetta mál trúi ég að eigi eftir að fá umfjöllun, við erum hérna bara rétt á upphafsmetrunum í umfjöllun um þetta mál. Þetta er risamál. Sennilega hefur árferðið og þessar skerðingar sem við höfum upplifað núna undanfarinn vetur sett orkumálin mjög hraustlega á dagskrá til viðbótar við auðvitað almenna vitundarvakningu um nýtingu og varðveislu náttúruauðlindanna okkar og það eru margar nýjar atvinnugreinar í startholunum. Ég ætla bara enda á því að segja að þegar tekið er tillit til mikilvægi þessa málaflokks fyrir búsetu í landinu, áhrifanna á náttúruauðlindirnar, uppbyggingu atvinnugreina og jafnræðis þegar kemur að orkuverði þá gerast þau sennilega ekki mikilvægari málin sem við fjöllum um hér á þingi um þessar mundir.