154. löggjafarþing — 117. fundur,  5. júní 2024.

raforkulög.

348. mál
[23:41]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P) (andsvar):

Forseti. Mig langar að biðja hv. þingmann sem fulltrúa í atvinnuveganefnd að hjálpa mér aðeins að skilja hvers vegna línan er dregin þar sem hún er dregin í frumvarpinu. Hv. þingmaður fór yfir það að það er ekkert auðvelt. Ef við byrjum út frá þeim punkti að vilja standa vörð um orku til heimila og drögum línuna einhvers staðar þar fyrir utan og einhvers staðar innan línu eru mikilvægir innviðir sem þurfa að hafa orku aðgengilega, þá finnst mér svo undarlegt að fjarvarmaveiturnar séu hafðar utan línunnar vegna þess að þetta mál fer af stað út af skerðingum þangað. Það eru skerðingar til fjarvarmaveitna og fiskbræðsluverksmiðja sem verða til þess að fólk sér þörfina á því að búa til eitthvert öryggisnet. Ég skil vel að bræðslurnar séu settar út fyrir línu vegna þess að þar er bæði mjög sveiflukenndur rekstur og þar að auki eru það bara fyrirtæki á markaði sem hafa miklar tekjur. Fjarvarmaveiturnar hins vegar eru orka til heimilanna, hún hefur bara viðdvöl í vatnskatli og hitar þar upp vatn sem heldur hita á íbúum heimilanna. Tvær milljónir lítra af olíu brunnu á Vestfjörðum síðasta vetur, þrjár milljónir þennan vetur. Þetta er risaloftslagsmál. Hagkvæmni veitnanna miðar við þessa sérstöku afurð sem heitir skerðanleg orka. Þess vegna er ekki bara hægt að segja: Ja, þau geta bara keypt forgangsorku. Það þarf að ná utan um þetta með einhverjum hætti. Það er ekki hægt að segja bara: Það er þeirra val að kaupa ekki forgangsorku, þau geta bara gert það. (Forseti hringir.) Ætlar meiri hluti atvinnuveganefndar að senda Vestfirðingum 200 millj. kr. reikning á ári fyrir að halda á sér hita yfir vetrarmánuðina? (Forseti hringir.) Af hverju varð þetta niðurstaðan?