154. löggjafarþing — 117. fundur,  5. júní 2024.

raforkulög.

348. mál
[23:44]
Horfa

Hanna Katrín Friðriksson (V) (andsvar):

Herra forseti. Hv. þm. Andrés Ingi Jónsson vegur nú illa að þeirri sem hér stendur, að láta hana svara fyrir skoðanir meiri hluta atvinnuveganefndar. En þetta er hins vegar góð spurning. Rétta tæknilega svarið er, eins og hv. þingmaður kom inn á rétt í lokin, að fjarvarmaveiturnar gera samninga um skerðanlega orku sem þýðir einfaldlega út frá samningsrétti og út frá lagalegri túlkun að þegar kemur til skerðinga eru þær efstar á blaði, rétt eins og loðnubræðslur og aðrir. Auðvitað má segja að miðað við þá reynslu og hversu stutt er síðan við fórum að þurfa að grípa til skerðinga þá hafi það verið góð viðskiptaákvörðun að gera slíka samninga vegna þess að það hefur ekki komið til skerðinga og þau hafa fengið orkuna á lægra verði hingað til. Ég er alveg sammála því að það er ástæða til að skoða þetta og ég veit að það hafa forsvarsmenn þessara fjarvarmaveitna nefnt. En það ætti þá kannski frekar að setjast niður við það borð og vera eitthvert innlegg í vinnu við aðra hluta þessarar heildarendurskoðunar en ekki hér af því að þetta eru samningsákvæði. Ég get eiginlega ekki svarað þessu nákvæmlega, ég bið hv. þingmann að virða mér það til vorkunnar að við erum komin að miðnætti og ég er að reyna að rifja upp samræður á fundum atvinnuveganefndar um þessi tilteknu mál. Það er alveg klárt að þetta var mikið til umræðu en þegar um er að ræða stöðu sem kemur til vegna samninga milli tveggja aðila þá þarf alla vega þá aðila með í viðræðurnar um mögulegar breytingar þar á.