154. löggjafarþing — 117. fundur,  5. júní 2024.

raforkulög.

348. mál
[23:46]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P) (andsvar):

Herra forseti. Já, ég biðst forláts á því að hafa dregið hv. þingmanninn í það að þurfa að svara fyrir meiri hlutann en ég sé mig nauðbeygðan til þess vegna þess að framsögumaður meiri hlutans svaraði mér engu öðru en að segja bara: Ja, það er ákvörðun þeirra að hafa keypt skerðanlega orku og þar við situr. Þetta er alveg rétt svo langt sem það nær. En það breytir því hins vegar ekki að þegar rafkyntar hitaveitur fara af stað sem konsept á Vestfjörðum fyrir 45 árum, þá er það vegna þess að sú orka, skerðanlega orkan, kostaði 12% af forgangsorku. Hún er komin upp í helming núna þannig að forsendurnar eru allt aðrar. En það breytir því ekki að 100% hækkun á orkuverði myndi gjörbreyta rekstrarforsendum og þar með forsendum fyrir búsetu á þessum landsvæðum. Það er ástæða til að skoða þetta en sú ástæða lá fyrir áður en þetta mál var lagt fyrir Alþingi (Forseti hringir.) og mér finnst stórfurðulegt að ráðuneytið og meiri hlutinn bjóði okkur upp á að afgreiða mál sem er sprottið upp úr skerðingum til rafkyntra hitaveitna (Forseti hringir.) án þess að það sé tekið á vandamáli sem snertir skerðingu til rafkyntra hitaveitna. Forsendur þessa frumvarps eru engar.