raforkulög.
Forseti. Ég þakka aftur andsvarið og ég verð að viðurkenna að ég þekki ekki þá tölu, mér finnst 30%, 25% býsna hátt en ég ætla sannarlega ekki að fara að rengja hv. þingmann um að það sé tapið, ég bara þekki það ekki. Þingmaðurinn kom í fyrra andsvari inn á þetta ástand sem skapaðist síðastliðið haust, en það gerist auðvitað líka af því að þarna er verið að bregðast við, það er svo mikil eftirspurn eftir orku að fyrirtæki voru farin, að sögn, samkvæmt fréttum, að lofa orku til ákveðinna notenda sem var ekki til. Þá kom sá ótti upp að heimilin bæru þarna skarðan hlut frá borði og þess vegna væri þörf á því a.m.k. að koma með svona mál sem tryggði þau. Það er klárlega rétt að heimilin eru þessi 5% og síðan eru smærri aðilar en stórnotendurnir (Forseti hringir.) sem Landsvirkjun framleiðir orku fyrir og selur líka til — þetta eru ekki hagsmunir sem snerta ekki heimilin. Hv. þingmaður er í flokki sem kallar mikið eftir auknu fjármagni í velferðarkerfin okkar. (Forseti hringir.) Arðsemi Landsvirkjunar til ríkissjóðs var 30 milljarðar núna á vormánuðum. Þetta eru peningar sem munar um þannig að það þarf að finna þetta jafnvægi og aftur er þetta ákall um pólitíska umræðu.