raforkulög.
Virðulegur forseti. Ég ætla að byrja á því að segja að mér finnst frískandi að eiga hér í samræðum um þetta mikilvæga öryggismál sem felst í því að geta gengið að því vísu að eiga hlýtt hús í sinni heimabyggð og geta haldið úti atvinnurekstri. Ég vil þakka hv. þm. Hönnu Katrínu Friðriksson kærlega fyrir að gera grein fyrir afstöðu Viðreisnar í þessu máli og það er ýmislegt sem fram kemur hér í umræðum sem ég get persónulega kvittað undir. Ég tek alveg sérstaklega undir með hv. þingmanni þegar hún ávarpar það að nú sé komið að ákveðnum skilum í umræðunni sem kalli á pólitíska forgangsröðun. Ég er svo þakklát fyrir að þetta sé afstaðan því að mér hefur ekki fundist stjórnvöld, alla vega ekki þessi ríkisstjórn, sýna nógu vel á spilin um það í hvað nákvæmlega þessi orka sem við höfum aflað á að fara í. Ég ætla að byrja á því að spyrja hv. þingmann um viðkvæmustu svæðin sem við eigum hér á landinu og þá sérstaklega þessi sem við teljum til kaldra svæða. Það er ljóst að það er þrefaldur munur á húshitunarkostnaði eftir búsetu á landinu. Finnst hv. þingmanni vera nógu skýr skref tekin í þessu frumvarpi í þá átt að við sjáum fram á jöfnun á þessum kostnaði á næstu misserum? Og í sömu röndina: (Forseti hringir.) Hversu forsvaranlegt til lengdar er að jafna og dreifa kostnaði eftir búsetu? Ég veit að ég fer fram á mjög lítið.