raforkulög.
Ég þakka hv. þm. Dagbjörtu Hákonardóttur fyrir andsvarið og tek undir með þingmanninum að það er gott að ræða þessi mál. Það er gott að fara í gegnum þessi mál hér og velta þeim upp. Ég vona líka, vegna þess að við sitjum hér að venju þingmenn stjórnarandstöðunnar í salnum og ræðum þessi mál, svo sannarlega, af því að ég geng út frá því að umræðu verði fram haldið um málið á morgun, að það þýði að stjórnarliðar mæti vel útsofnir og hressir í umræðuna en láti ekki eins og þeir láti sig þetta mál engu varða því að ég veit betur. Sérstaklega væri nú gott að fá landsbyggðarþingmennina með í þessa umræðu sem hv. þingmaður veltir hér upp um jöfnun á kostnaði á milli sveitarfélaga og um þessi köldustu svæði. Meðal þess sem við í atvinnuveganefnd skoðuðum og áttuðum okkur á var þessi gríðarlegi munur, þessi gríðarlegi kostnaður fyrir íbúa þessara köldu svæða. Ég er nú bara alin upp í Breiðholtinu og borga þar með sama reikning og ég borgaði í æsku og aðrir í þéttbýlinu. En þetta er náttúrlega ekki hægt. Það er hætt við því að ef við leggjum alla áhersluna í svari okkar við mögulegum orkuskorti og afleiðingum hans á orkuna til heimila á það að bregðast við með því að leiða saman framboð og eftirspurn og láta verðið ráða, þá erum við sannarlega að vinna gegn öllum markmiðum um jöfnun kostnaðarins. Við þurfum að ganga lengra í því ef þetta á að verða áfram eitt af því (Forseti hringir.) sem er jákvætt og fýsilegt og það sem við höfum best upp á að bjóða.
Varðandi seinni spurninguna, áður en forseti ber aftur í bjölluna, hversu langt á að ganga í jöfnuninni, þá treysti ég mér ekki til að svara því hér og nú. En umræðan er þörf.