raforkulög.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir atlöguna að svarinu og ég ætla að taka undir fullyrðingar um að það sé hjákátlegt að fulltrúar höfuðborgarsvæðisins séu að halda uppi þessari umræðu um aðstæður á landsbyggðinni. Þó er það kannski bara líka fullkomlega eðlilegt því að ég held að það sé ábyrgðarhluti fyrir okkur höfuðborgarþingmenn að leggja okkar af mörkum í einhvers konar toxískan ríg sem hefur lengi verið viðkvæðið.
Annað sem mig langaði til þess að ávarpa eru samfélagslega mikilvægir innviði og það hvernig óviðráðanleg atvik geta birst í tengslum við þá. Er að mati hv. þingmanns nægilega skýrt hvað nákvæmlega felst í þessum óviðráðanlegu atvikum, svona út frá þessum ákvæðum? (Forseti hringir.) Ég verð að viðurkenna að við fyrsta lestur áttaði ég mig ekki svo glatt á því.