154. löggjafarþing — 117. fundur,  6. júní 2024.

raforkulög.

348. mál
[00:03]
Horfa

Hanna Katrín Friðriksson (V) (andsvar):

Herra forseti. Nú þarf ég að rifja upp. Óviðráðanlegt er vissulega grunnurinn eins og t.d. að skerðingu sem Landsvirkjun greip til, það var vegna lélegs vatnsbúskapar sem, þrátt fyrir að við lifum á tækniöld, er sennilega eitthvað sem við verðum að kalla enn sem komið er óviðráðanlegt. En það var reyndar þannig að í upphaflegu lögunum var talað um ófyrirséð líka, það var verið að hræra með þetta. Nú man ég ekki nákvæmlega hvernig umræðunni vatt fram og af hverju þetta varð niðurstaðan en það var töluverð umræða um þetta, um hvar við drögum línuna. Ef skortur myndast af einhverju sem er óviðráðanlegt af því að einhver gerir mistök eða af því að stjórnvöld hvers tíma ákveða að grípa ekki inn þegar þau ættu að gera það, er það óviðráðanlegt? En ég held að stóra málið í textanum eins og hann kemur fyrir séu þessar náttúrulegu aðstæður sem eru auðvitað alltaf ráðandi þegar um er að ræða náttúrulegar auðlindir.