154. löggjafarþing — 118. fundur,  6. júní 2024.

leyfi til hvalveiða.

[10:35]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Virðulegur forseti. Mig langar hér við þetta tækifæri að beina fyrirspurn til hæstv. matvælaráðherra er varðar hvalveiðar og útgáfu leyfis til hvalveiða. Umsagnarfrestur þess mikla fjölda sem fékk umsagnarbeiðni óvænt frá ráðuneytinu, eða hæstv. ráðherra eftir atvikum, núna nýlega mörgum mánuðum eftir að umsókn um leyfi til hvalveiða barst ráðuneytinu, rann út á þriðjudaginn, fyrir tveimur dögum síðan. Og nú er ekki hægt annað en spyrja: Hvað tefur orminn langa? Hvenær má áætla að afstaða hæstv. ráðherra liggi fyrir og verði ljós? Er eitthvað sem ráðherrann sér í málinu eins og það liggur fyrir sem bendir til þess að ráðherrann hafi beinlínis stöðu til að gefa ekki út leyfi á grundvelli þeirrar umsagnar sem liggur fyrir? Lagaramminn er eins og hann er. Hann er í gildi. Ráðgjöf Hafró liggur fyrir, óbreytt ráðgjöf frá því sem áður var. Ætlar núverandi matvælaráðherra í einhverju að hverfa frá þeirri meginstefnu sem viðhöfð hefur verið um langa hríð, að fara að ráðgjöf Hafró hvað varðar nytjastofna landið um kring?