154. löggjafarþing — 118. fundur,  6. júní 2024.

leyfi til hvalveiða.

[10:37]
Horfa

matvælaráðherra (Bjarkey Gunnarsdóttir) (Vg):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina. Til að byrja með vil ég segja að sú vinna hefur verið í gangi í ráðuneytinu að leggja mat á lagaumhverfið í kringum hvalveiðar, ekki síst í ljósi framkvæmdar eftirlitsaðila. Við þekkjum skýrsluna frá umboðsmanni frá því í janúar. Þetta er líka tengt stefnumótun á málefnasviðinu og reglugerðum sem eru undir í kringum veiðarnar. Í gangi hefur verið undirbúningur og endurskoðun reglugerða í kringum þetta.

Ég vil nú kannski líka halda því til haga að þegar hvalveiðar voru leyfðar síðast, árið 2019, tók afgreiðsla ráðuneytisins og ráðherra, Kristjáns Þórs Júlíussonar, sem þá var starfandi sjávarútvegsráðherra, um fjóra mánuði. Veiðar hófust reyndar ekki fyrr en um miðjan júlí á þeim tíma. Þá var það óbreytt. Síðan þá erum við hins vegar með álitaefni undir, eins og við þekkjum, sem hafa komið upp varðandi aflífun dýranna og samspil laga um hvalveiðar og velferð dýra sem við þekkjum og fjallað var um í áliti umboðsmanns. Það er því í sjálfu sér ekkert frábrugðið a.m.k. í tímalengdinni og áður hefur verið.

Staðan er þannig núna að lokaumsagnir bárust um kvöldið 4. júní. Ég er byrjuð að lesa þær yfir. En staðan er þannig núna að Hvalur hefur frest fram á morgundaginn til að koma með athugasemdir og nýta sinn andmælarétt. Fyrirtækinu var tilkynnt það, í þessu bréfi til andmæla, að ég hyggist birta niðurstöðu mína í þessu máli á þriðjudaginn.